
Ég hef sagt í gríni að hér sé í gangi plott þess efnis að endurvekja Kolkrabbann gamla.
Þannig standi til að einn af laukum gömlu fjölskyldanna (fjórtán) verði formaður Sjálfstæðisflokksins.
Valur Valsson og Magnús Gunnarsson voru orðnir formenn bankaráða (en eru reyndar farnir þaðan aftur).
Og svo er það Mogginn sem er kominn í hendurnar á útgerðar- og kvótaauðvaldi sem tengist inn í innsta kjarna Sjálfstæðisflokksins.
Maður vonar að þessi hópur hafi vit á að láta blaðið að mestu afskiptalaust.
En treystir því samt ekki sérlega vel.
Mogginn hefur staðið sig mjög vel undanfarna mánuði, eftir hrun bankanna, en það er auðvelt að rústa þeim túverðugleika.
Og drepa fjölmiðilinn endanlega í leiðinni.