fbpx
Föstudagur 27.febrúar 2026
Eyjan

Spaugilegar smáfréttir

Egill Helgason
Þriðjudaginn 24. febrúar 2009 16:48

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

AMX er fjölmiðill sem birtir ýmsa smámola, suma spaugilega, undir yfirskriftinni Fuglahvísl.

Um daginn var skrifað þarna að fólk innan Samfylkingarinnar væri að biðja mig að koma í framboð fyrir flokkinn. Ég ætti jafnvel að verða menntamálaráðherra (sic!).

Staðreyndin er auðvitað sú að enginn hafði samband við mig þaðan, enda hefur mér aldrei dottið í hug að á þeim bæ væri neinn áhugi á að fá mig í framboð.

Og í mola frá því í gær er talað um að ég sé orðinn stuðningsmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í prófkjöri í Sjálfstæðisflokknum.

(Guðlaugur Þór er sá stjórnmálamaður sem AMX er hvað mest í nöp við, ástæðan er meðal annars sú að hann lagði til atlögu við Björn Bjarnason í prófkjöri. Þetta var það sem heitir á frönsku faux pas.)

Ástæðan er sú að ég skrifaði litla grein þar sem ég lagði út af skoðanakönnunum sem koma sér ansi illa fyrir Guðlaug, en vel fyrir mótherja hans innan flokksins, Bjarna Ben og Illuga Gunnarsson.

Tíminn líður hratt – og kannski hefur þeim á AMX einfaldlega yfirsést greinin sem ég skrifaði um vini Guðlaugs innan Landsbankans undir yfirskriftinni Sjálfstæðisbankinn. Þessi grein birtist um áramótin.

Ég veit að ég á ekki að elta ólar við þetta, en æ, ég læt það samt flakka.

Annars segir DV þetta um baráttu þeirra Guðlaugs og Illuga, blaðið kallar það blóðugt stríð.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri

Sigmundur Ernir skrifar: Framsóknarflokknum hallað til hægri
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi