
Sjálfstæðisflokkurinn hefur sett á stofn svokallaða Endurreisnarnefnd sem á að skila skýrslu fyrir landsfund flokksins í mars.
Allt gott um það. Flokkurinn hlýtur að þurfa að endurskoða stefnu sína í ljósi efnahagshrunsins.
Spurning er í hvaða átt verður stefnt – hvort til dæmis sósíaldemókratískar áherslur verði fyrirferðarmeiri en áður. Allavega býst maður ekki við sterkum einkavæðingarboðskap. Og svo er auðvitað spurning um Evrópumálin.
Það vekur nokkra athygli að það er Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sem stjórnar starfi nefndarinnar.
Samtök atvinnulífsins hafa verið sérstaklega nátengd stóru fyrirtækjasamsteypunum og eignarhaldsfélögunum sem eiga hugsanlega mestan þátt í hruninu– eins og glöggt má sjá þegar skoðað er hvernig stjórn samtakanna er skipuð.