
Margeir Pétursson skákmaður fjallaði um fjármál á beittan, gagnrýninn og stundum fyndinn hátt í greinum sem hann skrifaði í Morgunblaðið fyrir allmörgum árum. Svo hvarf hann sjálfur inn í fjármálalífið.
En virðist vera einn af fáum sem kemur sæmilega óskaddaður út úr hruninu.
Margeir er í athyglisverðu viðtali í sunnudagsblaði Morgunblaðsins þar sem hann segir meðal annars:
„Það sem blekkti menn mikið var þróun hlutabréfaverðs hér á landi. Það tókst lengi að halda hlutabréfum bankanna uppi og til þess þurftu þeir að nota sitt eigið fjármagn, sem veikti þá.“
Ég hef skilið það þannig að þarna kunni að vera um lögbrot að ræða. Þetta eru vísvitandi blekkingar. Til þessa voru notuð félög eins og Stím og Gift og líklega voru kaup bróður emírsins af Katar í Kaupþingi af sama toga.
Sjálfur hef ég líka heyrt í mönnum sem var gagngert boðið að stofna svona félög síðastliðinn vetur – semsagt að fá stórfé að láni frá banka til að kaupa hlutabréf í sama banka.
Í því skyni að hækka gengi félagsins.