
Ég held það sé alveg rétt hjá Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni að fáir stjórnmálaflokkar eru jafn gjarnir á að hanna atburðarás og Samfylkingin. Einhvern tíma þótti þetta kannski gott, en eftir gjaldþrot blairismans verður mörgum ómótt þegar þeir sjá slíkar aðfarir í pólitík.
Samfylkingin hefur haft tilhneigingu til að rugla spuna saman við alvöru stjórnmál. Flokkurinn er líka með nokkra erkiplottara í sínum röðum.
En ég held það séu mistök hjá Sigmundi Davíð að tala um rógsherferð gegn sér. Stjórnmálamaður sem talar svoleiðis sýnir veikleikamerki. Halldór Ásgrímsson ræddi oft um aðför að sér. Það varð honum aldrei til framdráttar.
Sá sem tekur við forystu í fjarskalega óvinsælum stjórnmálaflokki eins og Framsókn getur heldur ekki búist við því að það verði eitthvað teboð.