
Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um eina af helstu bókabúðum bæjarins, Bókabúð Máls & menningar við Laugaveg.
Húsið sem búðin er sögufrægt. Það var reist af sósíalistum á sínum tíma og var þess vegna uppnefnt Rúblan, þar hafa margir nafnkunnir menn starfað og þar var meira að segja mynduð ein af ríkisstjórnum Íslands.
Ragheiður Kristjánsdóttir sagnfræðingur segir frá doktorsritgerð sinni, merkilegri bók sem fjallar um þjóðernisstefnu og sósíalisma á fyrrihluta síðustu aldar. Í bókinni kemur meðal annars fram að leiðtogi sósíalista, Einar Olgeirsson, var einn helsti hugmyndasmiðurinn bak við lýðveldishátíðina 1944.
Bjarni Harðarson segir frá uppáhaldsbókum sínum, en Kolbrún og Páll fjalla um skáldsögurnar Fundið fé eftir Jens Lapidus og Bókaþjófinn eftir Markus Zuzak.
Bragi segir frá dularfullum syni Steingríms Thorsteinssonar höfuðskálds.