fbpx
Sunnudagur 01.mars 2026
Eyjan

Bréf um Haarde í Hardtalk, tímasóun og lögfræðingastóð á þingi

Egill Helgason
Mánudaginn 16. febrúar 2009 13:23

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skuldakreppa

Við erum í skuldakreppu. Hagfræðingar kalla þetta lánsfjárskreppu sem sýnir einfaldlega á hversu miklum villugötum sú stétt er á – guð blessi þá alla með tölu.

Það eru þrjár leiðir út úr skuldakreppu:

1. Leið markaðarins sem felur í sér fjöldagjaldþrot heimila og fyrirtækja, atvinnuleysi og gríðarlegan samdrátt. Þetta er “liquidate” -leiðin sem var farin var í Kreppunni miklu. Ef við förum þessa leið verður afleiðingin líklega svipuð og á fjórða áratuginu. Ekki beint álitlegur kostur.

2. Koma af stað nýrri útlánabólu. Þetta er leiðin sem hefur verið farin síðastlin 20 ár. Húsnæðisbólan tók við af netbólunni o.s.frv.. En í raun værum við bara að fresta vandanum og magna hann. Ekki beint freistandi.

3. Verðbólguleiðin. Setja peningaprentunina á fullt og bjarga skuldurum á kostnað eignafólks.

Í dag er IMF, skv, rétttrúnaði sýnum, að reyna að ýta okkur niður markaðsleiðina. Á sama tíma eru allar vestrænar þjóðir (þeir sem stjórna IMF) leynt og ljóst að fara verðbólguleiðina.

Hér að ofan minntist einhver á verðhjöðnun, en samkvæmt þeim sem ég les (og þeir hafa haft rétt fyrir sér til þessa), mun sú þróun snúast við jafnsnöggt og verðbólguáhyggjurnar hurfu af sjónarsviðinu síðastliðið sumar. Nú er verið að taka skuldir af efnahagsreikningi einkageirans og fær þær yfir á reikning ríkisins. Þetta á eftir að taka nokkurn tíma (Bandaríkin eru líklega hálfnuð en Evrópa rétt að byrja) en þegar kemur að skuldadögum verða prentvélarnar settar á fullt. Bandaríkin munu að vanda ríða á vaðið; fylgist með gengi dollarans, hækkandi ávöxtunarkröfu ríkisbréfa og olíuverðhækkunum.

Eins slæm og verðbólguleiðin er þá er hún eflaust besti kosturinn. Verðtrygging kemur í veg fyrir að Íslendingar geti farið þessa leið og þá er bara gjaldþrotið eftir.

Góða skemmtun.

— — —

Líka bújarðir?

Líklegt er að flestar bújarðir á Islandi séu nú komnar í eigu erlendra banka Landsbanki Islands keypti Lánasjóð landbúnaðarins fyrir nokkrum árum.Þau veð sem bankinn fékk þá í íslenzkum bújörðum eru nú að líkindum komin í eigu kröfuhafa Landsbankans erlendis með skuldabréfavafningum á sama hátt og skuldir sjávarútvegsins.

— — —

Hinn napri sannleikur?

Annað hvort var fráfarandi ríkisstjórn veruleikafirrt, með verulega slæmt tilfelli af valskynjun, eða hún gekk erinda sérhagsmunahópa í stað kjósenda. Lítum nánar á hvað styður þetta.

Heimildir
Mogginn í dag er afar fróðlegur.  Þar staðfestir Mats Josefsson að ríkisstjórn Geirs Haarde var á villigötum.  Lítum aðeins nánar á og dæmi hver fyrir sig hvort rétt sé ályktað hjá mér hér fyrir ofan.

Punktar úr viðtali við Mats Josefsson í Morgunblaðinu.

Þetta sagði Mats og á ekki síst erindi til fráfarandi ríkisstjórnar:

•    “Stjórnvöld þurfa að vera leiðbeinandi í þessum efnum, enda bankarnir nú að nýju í ríkiseigu. Eins verði stjórnvöld að móta sér framtíðarstefnu varðandi bankana” – Þetta er sagt vegna þess að þetta hefur ekki verið gert. Er þetta ekki harður dómur á störf fráfarandi ríkisstjórnar?  Fjórum mánuðum eftir hrunið!!!

•    Mats segir að móta verði  afstöðu til framtíðareignarhalds fjármálastofnananna. „… Þar til nú [að ný ríkisstjórn kom] hefur enginn talað máli stjórnvalda …“  Er þetta ekki harður dómur á störf fráfarandi ríkisstjórnar?

•    Mats heldur áfram:  “Til þessa hafi ríkisstjórnin hins vegar ekki gætt eigin hagsmuna nógu vel. …  ekki [er]  síður mikilvægt að tryggja hagsmuni íslensku þjóðarinnar”  Er hægt að fá verri umsögn?  Skildi fráfarandi ríkisstjórn alls ekki verkefnið?

•    Áfram heggur Mats í sama knérunn:  “Nefndin [um endurreisn fjármálakerfisins] geti hins vegar bara komið með tillögur. Það sé stjórnvalda að hrinda þeim í framkvæmd”  Hér er enn einn harður dómur á hvernig fráfarandi ríkisstjórn kom að málum, eða öllu heldur kom ekki að málum.

•    Mats “… segir stjórnendur bankana þó ekki geta skorast undan ábyrgð”  Hann er með kurteislegum hætti að gagnrýna að sömu stjórnendur skuli enn sitja. Þetta var jú fólkið sem kom á þeim viðskiptum sem setti þjóðin á hausinn.   Af hverju hefur þetta verið látið viðgangast ?  Og gerir það enn?
Þetta er það sama og ég hef bent á þegar ég sagði “Eigum við að treysta sama fólkinu áfram?” og “Eru gerendurnir að gleymast?”

Hvernig rímar nú viðhorf fráfarandi ríkisstjórnar við boðskap ráðgjafans?
Skoðum nokkur dæmi sem líka eru í Mogganum:

•    “Fyrrverandi forsætisráðherra lofaði formönnum bankaráða og bankastjórna engum pólitískum afskiptum” Er ekki með endemum að fráfarandi ríkisstjórn hafi framselt eign þjóðarinnar frá sér til þriggja dáindismanna, með allri virðingu fyrir þeim.  Er ekki ætlast til þess að ríkisstjórnin leggi línurnar, gæti hagsmuna þjóðarinnar og stjórni?

Eru tengsl ríkisstjórnarinnar, fulltrúa eiganda bankanna, við stjórnir þeirra tilviljanakennt ástand? Ég hélt í einfeldni minni að ríkisstjórnin væri hagsmunagæsluaðili kjósenda.  Þannig litu Geir og Ingibjörg greinilega ekki á málið.  Eru það ekki stórkostleg afglöp?

•    Hlustaði Geir ekki á ráðgjafa sinn Josefsson, þegar hann sagði:  “Stjórnvöld þurfa að vera leiðbeinandi í þessum efnum, enda bankarnir nú að nýju í ríkiseigu. Eins verði stjórnvöld að móta sér framtíðarstefnu varðandi bankana”
Þó svo að pólitísk afskipti af bankakerfinu hafi reynst okkur illa, þá hefur einkavæðingin í því formi sem hún var útfærð, reynst okkur enn verr.   Við megum ekki rjúka öfganna á milli.

•    Sjálfstæðismaðurinn Ármann Kr. Ólafsson skemmtir okkur líka, en hann segir að “þrautreyndum bankastarfsmanni, Elínu Sigfúsdóttur, bankastjóra Landsbankans, [hafi verið] ýtt úr starfi ….”  Hvað er hann að hugsa þegar hann segir þetta?  Elín sem er ein af þeim sem ekki geta vikið sér undan ábyrgð á bankahruninu.

Hvað gengur Ármanni til?  Hann ætti að hlusta á ráðgjafa ríkisstjórnarinnar sem segir að “…stjórnendur bankana þó ekki geta skorast undan ábyrgð”   Er þetta skynsemisbrestur eða gróf hagsmungæsla sem ræður hér ferðinni?

Að lokum
Það eru tvær mögulegar skýringar á lélegri frammistöðu Geirs og Ingibjargar.  Þeir eru:

1.    Fráfarandi stjórnvöld voru í alvarlegri afneitun og haldin verulega slæmri valskynjun, þegar þau tókust á við bankahrunið;
eða
1.    Fráfarandi stjórnvöld voru hreinlega of upptekinn við sérhagsmunagæslu einkavina, í stað kjósenda?

Hvort var það?

— — —

10 prósent

Á vefnum amx.is segir eftirfarandi:

„Í frétt hér á AMX í síðustu viku kom fram að talið er að verðmæti
eigna Baugs sé um 10% af skuldum, þ.e. ef þær yrðu seldar í þvingaðri
sölu við núverandi aðstæður“
http://www.amx.is/frettaskyringar/4000/

10%!  Þetta er hreint makalaust ef satt er. Hvernig gat pilturinn
endalaust fengið lánaða peninga? Maður veltir fyrir sér hvort
samskonar vitleysa hafi verið í gangi hjá Björgólfi Thor?

— — —

Hví eru þeir ekki kallaðir fyrir?

Hvers vegna eru yfirmenn bankanna þriggja sem fóru á hausinn, Seðlabankastjórar, FME, bankamálaráðherrarar fyrri stjórna og fjármálaráðherrar, forráðamenn stjórnmálaflokka núverandi og fyrrverandi ásamt óháðum sérfræðingum ekki kallaðir fyrir eins og í Bretlandi.

Það var lágt á þeim risið forráðamönnum einkabankanna í Bretlandi, nánast tárfellandi, SORRY, SORRY, SORRY!!! meðan á Íslandi eru þeir bara með skæting. Sendi hér link frá þessum yfirheyrslum þingnefndarinnar.
http://news.bbc.co.uk/2/hi/business/7880292.stm

Hvað vissu bankarnir, hvað vissi Seðlabankinn og hvað vissi ríkisstjórnin og hvað var aðhafst eða ekki aðhafst. Fá þetta á borðið og ætti að vera búið fyrir löngu.

— — —

Lögfræðingastóðið á þingi

Munið þið, góðir hálsar eftir Björgólfi Thor í sjónvarpinu? Minn maður var líklega í íbúð sinni í London. Það var uppi á honum typpið. Skýringarnar á falli LÍ voru þær, að allt væri stjórnvöldum og SÍ að kenna. Já, já, minn maður vissi þetta allt. En svo sagði hann, að þeir hefðu farið fram á 200 milljón pund frá SÍ til að fá útibúið Icesave í Bretlandi yfirfært í dótturfélag, en þá hefði opinber ábyrgð á innistæðum fallið niður. Allt SÍ að kenna. Þessi maður var akandi í London í Rolls Royce eða Bentley og talinn með ríkustu mönnum í heimi. Þarna er einskær dómgreindin í sínu veldi. Þetta er betri frammistaða en handboltalið okkar vann til í Peking. – Já, þetta er svona. Þessir menn senda á milli landa tugi milljarða og enginn gerir eða veit neitt. Jú, rannsóknanefndin á að rannsaka málið. – Svo segir lögfræðingastóðið á þingi í kór, að það verði að fara að lögum. Það má ekki frysta eignir auðmanna því það verður að fara að lögum. Það er ekkert bannað að vera ríkur. Ef menn eru teknir með bakpoka með einhverju dópi, þá eru þeir settir í gæsluvarðhald í mánuði. Já, það verður að fara að lögum. – Ef menn eru að rogast með eða senda tugi milljarða úr íslenskum bönkum til Lux eða Tortola,þá verður að fara að lögum. Það segir Birgir, Sigurður Kári, Lúðvík, Birkir en viti menn, ekki Atli. Birgir gæti jú verið sýsluritari á nítjándu öld og passað upp á formalitetið. – Jón Steinsson, háskólakennari við Columbia, segir að það vanti lög, sem banna að stela.

– En Bjögginn, hann má rýja af okkur hæruna og æruna sem og budduna, en það verður að fara að lögum. Lögfræðingastóðið á þingi er með hugann við fortíðina og er ófært til að útbúa reglur fyrir framtíðina.

— — —

Haarde í Hardtalk

Ég horfði eins og fleiri á viðtalið við Geir Haarde í þættinum Hardtalk sem sýndur var á RÚV.

Það var alveg stórmerkilegt að hlusta á tilsvör Geirs og fylgjast með líkamstungumáli hans. Það var bókstaflega átakanlegt að verða vitni að því hvernig honum tókst að koma sér hjá því að viðurkenna minnstu ábyrgð. Spyrillinn reyndi aftur og aftur að fá hann til að játa mistök og biðjast afsökunar. En allt kom fyrir ekki.

Ég held að það sem hrjái aumingja manninn sé sama veiki og hrjáir marga sjálfstæðismenn af hans kynslóð og kalla mætti fágaðan hroka. Þessu fólki finnst það vera betra og fínna en annað fólk í landinu. Því finnst að það sé réttborið til valda hér. Og það mun aldrei viðurkenna mistök. Í þessu fólki er ekki til auðmýkt eða lítillæti. En það felur hrokann undir kurteislegu yfirbragði á svipaðan hátt og yfirstéttirnar í Evrópu.

Mér fannst þetta viðtal sorglegt og mér fannst hann verða sér til minnkunar, aumingja maðurinn.

— — —

Tíma hefur verið eytt til einskis

Björn Þorri hefur oft áður hitt naglann á höfuðið og er hér með hugmyndir sem eru fínar. Ég væri líka til í að sjá fækkun alþingismanna, Steingrímur J er jú með mörg ráðuneyti og því á þá bara að fækka á þingi og fá liðið til að vinna eins og annað fólk. Þeas, mæta alla daga, ekki vera í jóla- og sumarfríum lengur en annað fólk og vera á vinnustaðnum allan daginn. Manni finnst stundum að enginn sé á þingi, þegar myndir berast þaðan. Ég td tók á mig meiri vinnu sl haust fyrir minni laun, til þess að vinnustaður minn eigi sjens á framtíð (og það virðist vera að skila sér, samkvæmt fréttum í fyrradag). Ég yrði rekinn þaðan, ef ég mætti ekki alla daga og væri til staðar allan daginn. Nei, þingmenn eru svo uppteknir í öllu hinu, ferðalög úti á landi, stjórnarseta í öðrum fyrirtækjum, valdabarátta á bak við tjöldin, ferðalög erlendis eða hvað þeir eru að dúlla sér. Jú, svo fer auðvitað mikill tími í að karpa um það hver átti höfundarrétt á frumvarpi, halló, geta menn þá ekki bara samþykkt þesskonar frumvarp ? Þingmenn þurfa að læra trix sem ég notaði nokkrum sinnum hér í denn (og geri stundum enn), en það snerist um ef ég vildi ná einhverju í gegn, þá sagði ég ætíð sem svo: “….. varst þú ekki að tala um það, að það væri svo góð hugmynd….”. (og svo kom ég með mína hugmynd..)

Og landið í eitt kjördæmi, takk. Hér á suðurhorninu eigum við flest heima og ég myndi alveg treysta mér ef ég væri á þingi að passa uppá fólkið af landsbyggðinni, alveg jafnt og hina sem eiga heima hér nálægt borginni. Var ekki einhver búinn að taka það saman sl sumar, að 10 – 12 % þingmanna tengdust Siglufirði á einhvern máta ? Það er því ekki skrítið að þar er verið að grafa þessi fínu göng.

En varðandi hvað á að gera, þá vill ég miklu frekar fá lausn minna mála nú, td fá út auka lífeyrissparnað, ég hef bara ekkert með hann að gera eftir 27 ár, ef ég lifi ekki af næstu 2 árin. Einfalt er það nú. Nú hugsar hver um sína og ég á börn sem eru komin í framhaldsskóla og sú elsta hefur verið með væntingar um að koma sér upp sínu eigin heimili á næstu misserum. Ekki líst mér á það lagsmaður en heppin erum við (ef við höldum húsinu), að kjallari er undir húsinu, sem hugsanlega væri hægt að breyta í íbúð. Er ekki með erlent lán á húsinu, en tek undir hugmyndir BÞV um að bakka með svoleiðis lán og koma þeim á núvirði samkvæmt öðrum hefðbundnum húsnæðislánun. Og að sama skapi þarf að gera eins fyrir þá sem eru með bíla á erlendum lánum. Amk eru tveir bílar á mínu heimili sem hafa sett allt í uppnám. Og burt með verðtrygginguna, þótt fyrr væri.

Og talandi um bíla. Ég keypti nýjan bíl á 2,9 millur í des fyrir rúmu ári. Lánið stóð í 6,1 núna í endaðan des. Takk fyrir. Og ef ég myndi vilja selja hann, þá fengi ég kannski 2 millur, ef ég er heppinn. Og þá þarf ég að gera upp 4,1 við lánveitandann. Og hvaðan kæmu þeir peningar ? Jú, úr húsinu, annað hvort með veði í því til 20 ára, eða þegar það yrði boðið upp, ef illa færi. Þetta er víst svona hjá mörgum. Ég á því ekki annars kostar völ en að þrauka en spurning er bara hver lengi ég þrauka….

Ég væri alveg til í að leggja í púkk og fá að vita lagalega stöðu mína sem einstaklingur í þessum málum almennt. Það er alveg ljóst að bankar og fl voru að leika sér með krónuna okkar, þetta upplifði ég í fyrra þegar ég var að reikna út ný verð á bílum daglega, en ég starfa við að selja atvinnubíla. Og fólk kemur daglega til mín, sumt grátandi og biður mig um aðstoð við að koma sínum bílum í verð. Og það sem er af þessari viku, hafa fjármögunarfyrirtækin komið með 3 atvinnubíla til mín í verðmat, sem er búið að hirða af fólki / fyrirtækjum.

Stórt verkefni er að fá aurana heim, þeas þá aura sem var skotið undan og eru faldir á þar til gerðum eyjum langt í burt…..eru þar ekki skráð 136 fyrirtæki, þar af helming stofnuð af KÞ og co ? Bjöggi og Hannes vildu jú koma með einhverja aura heim og taka þátt í uppbyggingunni, en hver vill sjá þá td kaupa aftur banka, eða önnur fyrirtæki sem verða til sölu hjá bönkum næstu mánuði ? Bjarni Á vildi skila pínu, en fékk ekki samúð. Það á skikka þessa kalla (og fl) að koma með ca 5 – 15 milljarða hver og afsala sér þessum peningum inn í okkar samfélag. Annars eiga þeir ekki breik hér á landi, flott að vera útlagi í sínu heimalandi. Svo þarf Birna bankastýra að fara á stutt námskeið í notkun heimabankans og greiða svo sínar kúlur til bankans. Væri ekki hægt að fá Hörð Torfa til að mæta með pottana og mótmæla heima hjá þessu liði ? Skildi löggan mæta ? Og Dabbi greyjið, nú mun fólk ekki kaupa bækurnar hans sem hann langaði svo mikið að gefa út, svona svipað og geisladiskar Kidda Jó sem hættu að seljast hér um árið.

En rétt er það, ef vinnuveitendur mínir og eiginkonu minnar færu á hausinn, þá erum við farin á hausinn um leið. Og þá er ég farinn til Norge… en nokkir vina minna eru farnir nú þegar (gerið ekki lítið úr þessu…). Og með sama áframhaldi, þá verða bara Bónus bófar hér eftir og skilja ekkert í því að enginn kemur að versla, né greiða af Stöð 2, og fl í þessum dúr. Kannski verða þeir feðgar bara sjálfir að afgreiða í Bónus, þegar allt veldið er horfið erlendis, eða standa eins og Palli einn í heiminum á sama stað og Óli Blaðasali var hér um árið og veifa þar DV. Og fyrir rest má sá síðasti slökkva ljósin í Leifsstöð, þegar hann stígur uppí vélina.

Aðgerða er þörf núna og það er búið að eyða miklum tíma til einskis. Það er td alltof seint að senda slökkvilið nú til berjast við elda í hlöðu norður í Grunnavík, sú vík fór í eyði 1948.

— — —

Bændur og milliliðir

Bændur eru orðnir þreyttir á því að láta sláturhúsin ráða verðinu. Þeir fá verðskrá frá sláturhúsunum þar sem gefið er upp kílóverð komandi árs. Þannig verður það, óháð öllu því sem bóndinn hefur kostað til. Bóndinn ræður engu.

Að auki tekur sláturleyfishafinn sinn skerf fyrir flutning á sláturhúsið, sums staðar fá bændur ekki einu sinni að keyra sjálfir.

Hér fylgir verðskrá til bænda, þar má sjá að hæsta kílóverð til bónda er 478 krónur. Ef skrokkur er 15 kg. gerir það 7.170 á lambið.

http://www.ss.is/til%5Fbaenda/afurdaverd/saudfe/

Algengt verð á lambalæri er 3-4000 krónur.

Milliliðir taka til sín bróðurpartinn.

— — —

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki