
Á skákmáli myndi það heita að Jón Baldvin hafi sett gaffal á Ingibjörgu Sólrúnu og Jóhönnu.
Riddari hótar tveimur drottningum í einu (jæja, það er kannski ólíkleg staða í skák!).
Jóhanna bregst við með því að lýsa yfir stuðningi við Ingibjörgu Sólrúnu.
Ingibjörg Sólrún segist hvergi ætla að víkja.
Samt eru þær báðar í bráðri hættu á taflborðinu. Margt bendir til þess að Samfylking undir forystu Ingibjargar Sólrúnar ríði ekki feitum hesti frá kosningum.
Jón Baldvin verður samt ekki nema riddari áfram. Ungir jafnaðarmenn lýsa yfir stuðningi við Sólrúnu. Foringjahollustan virðist vera mjög sterk í Samfylkingunni. Maður heyrir af samfylkingarfólki sem er froðufellandi af reiði út í Jón Baldvin.
En hann gerir þó ekki annað en að afhjúpa veikleika í flokknum sem hefðu hvort eð er orðið ljósir löngu fyrir kosningar.