
Hilmar Hafsteinsson er einn af forystumönnum Radda fólksins. Hann hefur meðal annars setið á fundum með ráðamönnum ásamt Herði Torfasyni – til dæmis með Ólafi Ragnari Grímssyni.
Hilmar ritaði eftirfarandi athugasemd hér á vefinn í gærkvöldi.
Mér þykir hún merkileg að tvennu leyti.
Hann virðist telja það ósvinnu að beina sjónum að „auðmönnum og bankamönnum“ í mótmælum og talar í því sambandi um að með því yrði „farið á svig við landslög“.
Og síðan gagnrýnir hann mig fyrir að „vega að forseta lýðveldisins“ – að með því að beina athygli að honum sé verið að „vega að grunnþáttum lýðræðis í landinu“.
Og eitt enn: Hverjir eru hliðverðir flokkseigenda á RÚV?
Eru þeir að störfum á fréttastofunni, í Speglinum, Kastljósi, Víðsjá, í þáttum Hjálmars Sveinssonar eða í Silfrinu?
Hér er bréf Hilmars, sem eins og ég segi, gengur næstur Herði að tign innan Radda fólksins.
— — —
EH virðist sleginn pólitískri blindu að hætti næstumþvíframsóknarmanna.
Hví í ósköpunum mega talsmenn Radda fólksins ekki ræða við forsætisráðherra, viðskiptaráðherra og forseta Alþýðusambandsins um stöðu Seðlabankastjóra og “hústöku” Davíðs? Þurfa Íslendingar núna uppáskrift hjá kommissar EH ef þeir vilja ræða við mann og annan? ”
“Í síðustu viku boðuðu Raddir fólksins hreinsanir í fjölmiðlum og háskólum” margtyggur EH af heilagri vandlætingu. Hið sanna er að í yfirlýsingu Radda fólksins frá 6. febrúar sl. segir: “Nú er nauðsynlegt að taka upp virkt lýðræði og losa þjóðina við útsendara flokkseigenda í fjármálafyrirtækjum, stjórnsýslunni, háskólum og fjölmiðlum.” Mótmælir einhver því að það sé tímabært að ýta sérplöntuðum hliðvörðum flokkseigenda út úr RÚV? Á ekki “Útvarp allra landsmanna” að vera hlutlaus og ópólitísk stofnun?
EH hefur lengi verið með “ólígarkana og kleptókratana sem settu landið á hausinn” á heilanum og viljað stjórna framgöngu mótmæla á þann veg að fyrst yrði ráðist á auðmenn og bankamenn og síðan landsfeður. Í pólitískum barnaskap telur EH að það sé vísasta leiðin til árangurs að fara á svig við landslög. Hann verður að eiga það við sjálfan sig.
Þáttastjórnandanum sjónumhrygga munar ekki um að vega að forseta lýðveldisins og biðja aðra um að beina athygli að honum. Gerðu það sjálfur Egill! Þáttastjórnandi á ofurlaunum ætti að vera í stakk búinn að vega að grunnþáttum lýðræðis í landinu. Bara að muna að undirbúa sig einu sinni dálítið vel.
EH virðist því miður staddur í öngstræti pólitísks barnaskapar og farið að slá á silfrið.