
Við höfum lifað í gerspilltu samfélagi, með spilltar fjármálastofnanir og spillt stjórnvöld sem ráðstöfuðu eigum almennings í hendurnar á vildarvinum. Þegar menn töldu sig hafa losnað við pólitísku spillinguna sem fylgdi ríkisbönkum, fóru þeir yfir í annað kerfi sem fljótlega varð miklu spilltara en hið fyrra.
Maður heyrði Samtök atvinnulífsins ekki kvarta mikið undan þessu.
En nú talar framkvæmdastjóri þeirra um hættu á spillingu ef ónýt fyrirtæki verða sett í sérstakt eignaumsýslufélag.
Vissulega er úr vöndu að ráða.
En ég er ekki viss um að ég treysti skilanefndum banka eða bankaráðum eitthvað betur.
Nú eru til dæmis nýfarnir úr bankaráðum tveir menn sem eitt sinn voru innmúraðir meðlimir í óformlegum félagsskap sem kallaðist Kolkrabbinn.
Kolkrabbinn var háþróað einokunarkerfi sem réð ríkjum í íslensku viðskiptalífi í skjóli Sjálfstæðisflokksins – til mótvægis við SÍS veldi Framsóknar.
Magnús Gunnarsson og Valur Valsson voru handvaldir í bankaráðin af Sjálfstæðisflokknum og telja að sér beri ekki skylda til að sitja þar lengur eftir að flokkurinn er kominn úr ríkisstjórn.
Við hverja er hollusta þeirra?
Í Þýskalandi var sett á stofn svona félag sem kallaðist Treauhand eftir fall alþýðulýðveldisins. Það tók yfir fyrirtæki í gamla Austur-Þýskalandi og reyndi að gera úr þeim verðmæti. Þetta var erfitt verkefni; einn af forstjórum Treuhand var meira að segja myrtur af hryðjuverkamönnum.
Vilhjálmur vill sjálfsagt sjá þetta allt í höndum einkaaðila sem fyrst. Og þá er líklegt að fylgi í leiðinni stórfelld skuldauppgjöf til margra sem hafa rekið fyrirtæki sín illa eða beinlínis í þrot.
Hvað til dæmis með hin stórskuldugu sjávarútvegsfyrirtæki? Eins og sjá má í meðfylgjandi lista yfir stjórnendur SA eru fulltrúar þeirra fyrirferðarmiklir.
Og líka stjórnendur úr eignarhaldsfélögunum sem Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra hefur lýst sem meinsemd í íslensku viðskiptalífi.
En eins og bent hefur verið á var ekki einungis um ríkisvæðingu banka að ræða í byrjun október. Þeir voru þjóðnýttir.
Og eitt af verkefnið er að byggja upp nýtt bankakerfi. Í raun er ekkert sem segir að það geti ekki verið allt öðruvísi en það sem við höfum fyrir. Manneskjulegra. Þjónn en ekki meistari. Ekki svo gegnsýrt af mammonsdýrkun.
Laust við spillinguna sem grasseraði hér árum saman – án þess að Vilhjálmur og vinir hans segðu múkk.
Svona lítur framkvæmdastjórn SA út:
| Þór Sigfússon formaður | Sjóvá hf. |
| Vilmundur Jósefsson varaformaður | Gæðafæði ehf. |
| Friðrik J. Arngrímsson | Landssamb ísl. útvegsmanna |
| Halldór J. Kristjánsson | Landsbanki Íslands hf. |
| Helgi Magnússon | Samtök iðnaðarins |
| Hrund Rudolfsdóttir | Milestone ehf. |
| Kristín Jóhannesdóttir | Baugur Group hf. |
og hér er stjórn SA:
| Þór Sigfússon formaður | Sjóvá |
| Arnar Sigurmundsson | Samtök fiskvinnslustöðva |
| Árni Gunnarsson | Flugfélag Íslands ehf |
| Brynjólfur Bjarnason | Skipti hf. |
| Franz Árnason | Norðurorka hf. |
| Friðrik Jón Arngrímsson | Landssamband ísl. útvegsmanna |
| Grímur Sæmundsen | Bláa lónið hf. |
| Guðjón Rúnarsson | Samtök fjármálafyrirtækja |
| Gunnar Karl Guðmundsson | Skeljungur hf. |
| Gunnar Sverrisson | Íslenskir aðalverktakar hf. |
| Halldór J. Kristjánsson | Landsbanki Íslands |
| Helgi Magnússon | Samtök iðnaðarins |
| Hrund Rudolfsdóttir | Milestone ehf. |
| Hörður Arnarson | Marel Food Systems hf. |
| Kristín Jóhannesdóttir | Baugur Group hf. |
| Loftur Árnason | Ístak hf. |
| Ólafur Rögnvaldsson | Hraðfrystihús Hellissands hf. |
| Rannveig Rist | Alcan á Íslandi hf. |
| Sigurður Viðarsson | Tryggingarmiðstöðin hf. |
| Vilmundur Jósefsson | Gæðafæði ehf. |