
Þetta eru tímabær orð frá Ragnheiði Ólafsdóttur, varaþingmanni að vestan, sem kemur inn á þing og blöskrar ástandið þar.
Ég held að þjóðin hafi ekki lyst á að horfa á áttatíu daga kosningabaráttu.
Svo þingmenn ættu að vinna störf sín með stillingu og reisn.
Forðast of mikið kjaftæði.
Ég spyr mig til dæmis um þetta frumvarp hér, um hvalveiðarnar.
Væri ekki nær að fara fram á greinargóða úttekt á söluhorfum á hvalaafurðum?
Og taka svo ákvörðun.