
Það er rétt að halda því til haga þegar Davíð Oddsson talar um aðför að embættismönnum að hann situr í Seðlabankanum í skjóli samtryggingar- og spillingarkerfis stjórnmálaflokka sem hafa iðkað að raða afdönkuðum stjórnmálamönnum á garðann í bankanum.
Og að meðal forvera hans í starfi eru Finnur Ingólfsson, Steingrímur Hermannsson, Tómas Árnason og Birgir Ísleifur Gunnarsson.
Það verður ekki með góðu móti sagt að nokkur þessara manna hafi átt erindi í þetta embætti.
Þeim var úthlutað embættinu eins og léni, með þökkum fyrir þjónustu við flokka sína – og af því þurfti að losna við þá.