fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Bréf um firringu, völd flokka, breytingar, VÍS og Framsókn

Egill Helgason
Laugardaginn 24. janúar 2009 20:09

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Eru gerendurnir að gleymast?

Ég vil benda sterkar á eftirfarandi en ég hef áður gert að gerendurnir, bankarnir, virðast vera að gleymast í umræðunni. Rifjum aðeins upp:

Eigendur og stjórnendur bankanna voru gerendurnir og þeirra ábyrgð er mest.
Stjórnendur bankanna voru leppar og verkfæri eigenda og auðmannanna og eru enn hallir undir þá.  Þess vegna er það forgangsverk að fara í stórhreingerningu í bönkunum nú þegar.  Það hefði átt að gerast í fyrstu dögum eftir hrunið.
Eigendur og stjórnendur bankanna komust upp með óhæfuverk sín vegna vilja- og/eða getuleysis FME og SÍ sem eftirlitsaðila.  Jafnvel í skjól þessara stofnanna fór stjórnendur bankanna sínu fram.  Þó svo að FME og SÍ hafi brugðist, þá er glæpur bankanna ekki minni.  Jafnvel meiri.

Mikilvægt er að hafa betra eftirlit með störfum skilanefnda bankanna.  Þær starf í umboði FME. Þannig er rekstur gömlu bankanna á ábyrgð FME. Hver hefur þá eftirlit með rekstri gömlu bankanna?  Ekki veit ég það!  FME er vanhæft í því verkefni.  Spor FME hræða líka. Augljóst er réttsýnu fólki að hjá FME og SÍ þarf líka stórhreingerningu.

— — —

Skuldabréf seld til erlendra fjárfesta – með verðtryggingu

Því miður er ég hrædd um að verðtryggingin risti dýpra en bara ríkið. Flestar ef ekki allar fjármálastofnanir (fyrir utan ÍLS held ég) hafa fjármagnað íbúðalán sín með útboðum á Structured Covered Bonds (ein týpa af sértryggðum skuldabréfum). Það þýðir að eitthvað af íbúðaskuldabréfum bankanna hefur verið seldur til erlendra fjárfesta með öllum þeim ákvæðum sem þar gilda (lán til 40 ára, verðtryggð og á tilteknum föstum vöxtum). Þeir vilja eflaust eitthvað fyrir sinn snúð ef fella á niður verðtrygginguna.

Svo sem ekkert ólöglegt við þessu týpu af fjármögnun bankanna en maður skildi ætla að miðað við hversu umdeild verðtryggingin væri þá hefði átt að hugsa sig tvisvar um áður en íbúðlánin væru seld til 40 ára annað.

Það eru til lög við útgáfu Covered Bonds (lög 11/2008) en bankarnir hérna komumst fram hjá þeim í með því að fara Structured Covered Bonds leiðina. Að mér skilst miðað við það sem ég hef lesið mig til um þetta.

En, ein leið til þess að afnema verðtrygginguna væri að afnema hana á öllum nýjum skuldabréfum. En ég veit ekki hvernig við myndum leysa þetta með þau skuldabréf sem þegar eru til staðar. Þar sem þetta myndi að sjálfsögðu kalla á endufjármögnun í massavís hjá þeim sem eru með eldri bréf. Þá væri áhyggjuefni hvernig þessir fjárfestar myndu taka á því.

Eða jafnvel er spurning hver tryggir Structured Covered Bonds? Er það ríkið eða Seðlabankinn? Í USA þá tryggir FDIC þessa týpu af bréfum og hefur hún orðið nokkuð umdeild vegna þess að FDIC þarf að borga mismunin á upphaflegu virði sjóðsins og taps hans (ef eitthvað). Ef ríkið tryggir þetta hér á Íslandi þá reikna ég með að það væru enn einu skuldirnar sem bætast á okkur t.d við fjöldagjaldþrot einstaklinga sem eiga þessi bréf o.fl.

En eins og ég sagði þá er ekkert ólöglegt við að bankarnir hafi fjármagnað sig á þennan hátt. En maður spyr hvort það hafi ekki verið ábyrgðarleysi þar sem verðtryggingin hér á landi er það umdeild.

Svo er fleira við þessa týpu fjármögnunar því hún eykur lausafjármagn hjá bankanum og ýtir undir útlánabólu, eins og verið hefur hér. Og margt fleira.

Því miður eru alltof fáir sem þekkja þessa fjármögnunarleið hér á Íslandi en hún er vel þekkt í Bandaríkjunum og Evrópu og sumum þykir hún umdeild. Hægt er að finna fjölda greina um þetta á netinu. Eins er hægt að googla öll útboðin sem bankarnir þrír hafa haft á þessum sjóðum og fá hugmynd um upphæð.

— — —

Flokkurinn eða þjóðin?

Skil ekki alveg samhengi hlutanna að undanförnu.

Ef Geir hefði ekki veikst – væru Sjálfstæðismenn þá enn mótfallnir kosningum?

Hver er hugsunin hjá þeim? Flokkurinn? Eða þjóðin?

— — —

Breytingar

Ég vil sjá eftirfarandi breytingar:

1) Að ríkisstjórn Samfylkingar og Sjálfst.flokks víki þegar í stað
2) Að mynduð verði ný ríkisstjórn Sjálfst.flokks og Framsóknarflokks
3) Að Davíð Oddsson verði fenginn til þess að leiða hina nýju ríkisstjórn
4) Að Halldór Ásgrímsson verði ráðherra sjávarútvegsmála eða utanríkismála
5) Að ekki verði boðað til kosninga í vor og að hin nýja ríkisstjórn sitji út kjörtímabilið.

6) Þá vildi ég gjarnan sjá hina nýju banka einkavædda sem fyrst og ég myndi gjarnan vilja sjá Björgólfsfeðga, Sigurð Einarsson, Hreiðar Má Sigurðsson, Bjarna Ármannssson, Ólaf Ólafsson,Finn Ingólfsson, og hinn fornfræga þýzka banka Hauck und Aufhauser í hópi nýrra eigenda.

7) Æskilegt væri að einkavæða Landsvirkjun einnig og sömuleiðis sem mest af orkulindum landsins ekki eru þegar í eigu Landsvirkjunar og ég vildi gjarnan sjá sömu menn og að ofan eru taldir í hópi nýrra eigenda. Þá mætti vel hugsa sér að sömu einstaklingar og fengu á sínum tíma úthlutað kvóta til eignar yrðu líka í hópi nýrra eigenda orkufyrirtækja og orkulindanna

8) Æskilegt er að selja ofangreindar eignir sem hóflegustu verði og geti kaupendur ekki reitt fram kaupverðið er mikilvægt að ríkið veiti þeim lán á hagstæðum kjörum og helst án allra persónulegra ábyrgða.

— — —

VÍS, Landsbankinn og Framsókn

Nauðsynlegt er einnig að halda því til haga hvernig VÍS var fyrst ,,selt” út úr Landsbankanum. Það varð að tryggja framsóknarvinum Halldórs, Finns og Valgerðar örugg yfirráð yfir tryggingafélagi – með almennilegum bótaábyrgðarsjóði.
Hefur nokkur könnun verið gerð á því hvar bótaábyrgðasjóðir VÍS eru í dag og hvernig þeir standa.
En þetta fólk – með Finn og Valgerði innst í ákvörðunum Giftar og með Halldór Ásgrímsson sem Guðföður – hefur með framferði sínu unnið að gjaldþroti þjóðarinnar.

Það leit nákvæmlega þannig út um sl. helgi þegar Framsóknarmenn voru að heiðra Valgerði Sverrisdóttur að það væri fyrir ,,óeigingjarnt” starf sitt hennar fyrir flokkinn við einkavæðingu bankanna.

— — —

Gísli, ESB og Benedikt

Sæll vertu. Nú verðurðu að rassskella hann Gísla Martein fyrir okkur. Það er ekki boðlegt að ungur stjórnmálamaður láti svona fordómafullt og heimóttarlegt bull út úr sér. Mikið óskaplega er þetta eitthvað á sorglega lágu plani.

„Ný forysta Framsóknar byrjar líka vel. Sigmundur Davíð hefur tekið óvænta forystu í Evrópumálum. Hann er óhræddur við ESB, en sogast ekki að jakkafötunum og forræðishyggjunni í Brussel á sama hátt Samfylkingarfólk.“

Ég sendi með Vísbendingu Benedikts Jóhannessonar. Hann er hámenntaður stærðfræðingur og lærði í Flórida minnir mig, til doktorsprófs. En hefur verið að reka lítil útgáfufyrirtæki auk Talnakönnunar sem bauð upp á margs konar greiningu á talnagögnum. Benedikt á merkilega sögu að baki í íslensku viðskiptalífi. Hann er ættarlaukur í Engeyjarætt en hefur ekki talist til mikilla eignamanna. Engu að síður var ákveðið að hefja hann til öndvegis á síðustu árum kolkrabbans, en þá sat hann í flestum stjórnum gamla kolkrabbans (vonandi eru menn ekki búnir að gleyma þeirra skelfilegu skeppnu) oft sem stjórnarformaður og var stundum kallaður hinn nýi stjórnarformaður Íslands. Þegar kolkrabbafyrirtækin féllu eða voru gleypt upp í græðgisvæðingu þjóðarinnar og taumleysi bankavaxtarára hvarf Benedikt að mestu af sjónarsviðinu.

Núna er hann kominn tilbaka, reynslunni ríkari, veit hvernig er að reyna að reka fyrirtæki á Íslandi með óútreiknanlegri og dauðvona krónu. Hann skrifar afar lipra og fordómalausa grein í Vísbendingu, sem er góður upphafspunktur að umræðu um ESB, ekki síst fyrir félaga Benedikts í Sjálfstæðisflokknum. Þegar maður les þennan lipra og læsilega texta hins hámenntaða fræðimanns finnst manni lágkúran frá eilífðarstúdentinum og stuttbuxnadrenginum eiginlega óbærileg.

— — —

Hliðstæður við Enron

Verð nú að viðurkenna að ég er nú að mestu búinn að missa áhugann á þessum
málefnum þjóðarinnar því ég er orðin nokkuð viss um að ekkert verður gert
af stjórnvöldum, og sennilega er lítið hægt að gera þjóðin er föst í
skuldafeni sem hún kemur til með að eiga mjög erfitt með að vinna sig úr
við komum kannski til með að eiga eitthvað upp í skuldir ef hún selur
allar náttúruauðlindir sínar!!
Mig langar samt líka að benda þér á langa og ýtarlega en mjög góða bók sem
heitir  CONSPIRACY OF FOOLS og er eftir Kurt Eichenwald og fjallar um
Enron og hvernig sú svikamylla var til og var hugsuð og hvernig það mál
var leitt til lykta í réttarkerfinu. En viðskiptahættir margra íslenskra
fyrirtækja virðast vera með svipuðu sniði og hjá þeim Enron mönnum eini
munurinn er að hér virðast viðskiptahættirnir vera löglegir þar sem engin
hefur verið kærður!!
Svo ætla ég að nota tækifærið og þakka þér fyrir góðan og faglegan þátt
sem margir fréttamenn á íslandi mættu taka sér til fyrirmyndar.

— — —

Hvert fór lánsféð?

Ég vil þakka þér fyrir þitt innlegg. Gaman væri að fá upplýsingar um skiptingu lána hjá gömlu bönkunum þ.e. hvert er hlutfall lána til einstaklinga á Íslandi þ.m.t. íbúðalán versus lán til fyrirtækja á Íslandi og svo lán til útrásarvíkinga vegna fjárfestinga þeirra í útlöndum. Ég hef grun um að þar komi í ljós hversu lítill hlutur fer til einstaklinga. Ég minni nefnilega á orð Björgólfs Guðmundssonar þar sem hann sagði “við tókum öll þátt í þessu”.
Í Bretlandi hefur komið í ljós að um 80% lána bankana þar hefur verið lánaður út fyrir Bretland og stærstur hluti til Rússa sem í dag geta ekki borgað skuldir sínar. Þetta bitnar að sjálfsögðu á almenningi í Bretlandi.

— — —

Snýst um völd flokka

Maður á nú ekki til orð með þessa flokka!! Ekki eru þeir mikið að hugsa um
hagsmuni þjóðarinnar heldur eru þeir eingöngu að hugsa um að bjarga eigin
skinni sérstaklega þegar kemur að Sjálfstæðisflokknum og Samfylkingin
gerir allt sem hún getur til að hindra það að hinn almenni flokksmaður fái
einhverju um málefni flokksins að ráða. Vinstri grænir vilja að við förum
þróunarlega afturábak og Framsókn með sinn nýja formann sem á ekkert að
hafa verið tengdur stjórnmálum….ha hvað með pabba hans??
Það er augljóst að mínu mati að utanflokksstjórn er hér besta lausnin og
mundi vera best fyrir þjóðina en þetta snýst jú ekki um þjóðina heldur
völd flokka og fólks þar inni!!!

— — —

Hinn tæri kapítalismi Sjálfstæðisflokks

Ég hef verið að velta fyrir mér hver staða Sjálfstæðisflokksinns er eftir bankahrunið og hverju hann hefur raunverulega komið í verk á 17 ára stjórnarferli sínum.

Yfirlýst stefna þeirra er að takmarka aðkomu ríkisins í sem flestum málum og einkavæða alla þá starfsemi sem mögulegt er að einkavæða í þeirri trú að allir njóti góðs af, sem er gott og gilt sem stefna og getur maður verið sammála henni eða ósammála (sleppum öllu um mannlega þáttin sem hefur áhrif á stefnuna, peningagræðgi eða valda).

Nú eftir hrun (reyndar fyrir líka) hafa margir bent á að ríkið hafi þanist út á þeim tíma sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd  og hafa þar farið fremstir í gagnrýninni þeir sem harðast hafa viljað fylgja ofannefndri stefnu og telja jafnvel að afskipti ríkissins hafi eyðilagt hinn “tæra” kapitalisma og að einkafyrirtækin, sem bankarnir voru, hefði einfaldlega átt að gera upp eins og hvert annað fyrirtæki.

Þegar við í dag skoðum hvað hefur gerst á þessum árum með tilheyrandi einkavæðingaferlum og útdeilingu/sölu á ríkisfyrirtækjum staðfestir það stefnu flokksins, einkavæðingaferla má reyndar gagnrýna á sama hátt og stefnuna, þ.e. að ekki hafi hinn “tæri” kapitalismi, markaðurinn ráðið, heldur pólitík.
Ég man reyndar ekki eftir að hafa heyrt gagnrýni frá þeim sem tala í dag um hinn “tæra” kapitalisma í einkavæðingaferlinu, en það má vel vera að þeir hafi gert það.

Niðurstaðan, eftir öll stjórnarárin, er sú að ríkisbáknið hefur þanist út, allir bankarnir eru í ríkiseigu, og ríkissjóður stórskuldugur.
Þetta er niðurstaðan, hvort sem mönnum líkar betur eða verr og hverju sem menn vilja um kenna.

Sjálfstæðisflokkurinn hlýtur í ljósi þessarar niðurstöðu að skipta út í brúnni ef þeir ætla að sannfæra sína menn um að fylgja yfirlýstri stefnu flokksins áfram eða breyta um stefnu ella, annað væri einfaldlega ekki rökrétt.

Það grátbroslegasta af öllu er samt að líklegast verður það í verkahring vinstri stjórnar að einkavæða ríkiskerfið, bankana, sem verður að teljast þvert á þeirra stefnu, nema þeir ætli að vera trúir sinni stefnu og halda bönkunum í ríkisrekstri.

Kannski er það bara vitleysa í mér en ég hef á tilfinningunni að margt sé á röngunni á Íslandi í dag.
— — —

Nei takk

„Lífeyrissjóðirnir gera kröfu um að lokið verði við uppgjör vegna
gjaldmiðlaskiptasamninga
þeirra sem sjóðirnir eiga í gömlu bönkunum áður en þeir koma inn í
Fjárfestingasjóð Íslands
sem einnig hefur verið kallaður Endurreisnarsjóður Íslands.“ (Mbl.is)

Það er hið alvarlegasta mál ef lífeyrissjóðirnir ætla að fara að segja
peningana okkar í einhvern Fjárfestingasjóð, sem aðallega á að vera til hjálpar
illa stöddum fyrirtækjum.
Ég persónulega segi nei takk – það síðasta sem við þurfum núna er að sjóðirnir
verið tæmdir eða eigur þeirra rýrtar.
Við eigendur hljótum að hafa eitthvað um það að segja og krefst ég þess sem
aðili að lífeyrissjóði að fá að kjósa um það hvort ég sætti mig við þetta.

Vek þvi athygli á þessu alvarlega máli og bið alla að vera MJÖG vakandi
gagnvart því að þetta komist í gegn, án þess að þeir sem eiga sjóðina fái
nokkuð um það að segja.

— — —

Flokkur umfram þjóð

Ég velti því fyrir mér á hvaða forsendum Sjálfstæðisflokkurinn er nú að boða
til kosninga. Í gær var sagt að það væri glapræði að kjósa, veikindi formanns
voru honum ljós þá. Nú er búið að tilkynna veikindin og þá eru kosningar settar
á. Ég hef ekki heyrt sjálfstæðismenn minnast á að kosningar eigi að fara fram
vegna ábyrgðar flokksins á hruninu og stefnu síðustu ára. Kosningar fara fram
af því að formaðurinn er veikur og flokkurinn í upplausn. Mér finnst rykið og
dramatíkin vegna þessarar tilkynningar hafa blindað mönnum sýn. Enn sem fyrr er
það flokkur umfram þjóð.

— — —

Hvar er forsetinn?

Merkilegt að hinn þjóðkjörni Forseti Íslands lætur ekkert á sér kræla nú þegar hans er þörf sem friðarboðaðandi sameiningartákns. Hvar er nú mærðin og væmnin?
Reynir ekki að mæta á Austurvöll til að stilla og róa fólkið.
Gerir ekkert til að leggja sitt að mörkum til að friður og spekt haldist.
Segir ekkert um trylltan skríl sem vanvirðir Alþingi, störf þingmanna, ræðs á rétt kjörna ráðamenn og ógnar almannafriði.
Er þetta ekki nokkuð merkilegt?
Þessi málgefni „tungufoss“ sem hefur vit á öllu-hvar er hann nú?

— — —

Firring

Ég er miðjumoðari í orðsins fyllstu merkingu.  Hef hvorki komið nálægt pólitík, menningu, hámenntun eða öðru slíku, er ekki einu sinni verkakona heldur ágætlega menntaður ríkistarfsmaður.  Hallast á miðju í pólitík oft með nokkra slagsíðu til vinstri.  Hef reyndar alltaf verið evrópusinni (þrátt fyrir að vera feministi:O), þ.e. litið svo á að betra væri að vera í samfloti með öðrum með þeim kostum og göllum sem því fylgir en hýrandi ein upp á heiði í sínum draugakofa.  Auðvita eru margir sem telja mig þ.a.l. ekki með sjálfstæðan vilja (þ.e. einn af almúganum sem fylgir straumnum), hvað þá að ég geti gengið stolt til hvílu.  En ókey – mitt markmið er að sjá til þess að börnin mín verði ekki fyrir of miklu hnjaski í lífsleiðinni og hafi forsendur til að verða hamingjusamir einstaklingar.

Undanfarnar vikur hef ég eins og flestir fylgst náið með ástandi mála, farið á mótmælafundi, orðinn mikill fréttafíkill og jafnvel commenterað einu sinni eða tvisar á bloggi annarra.  Mér eins og öðrum svíður sárlega undan því að hafa verið tekin í rassin svo harkalega, verið algjörlega misboðið yfir því að gerendur valsa enn um og nýta öll tækifæri til að taka mig í rassinn aftur.  Er algjörlega miður mín, reið og sár yfir því að þeir sem áttu að verja mig hafa fyrrað sig allri ábyrgð með því að segja að það voru ekki þeir persónuleg sem frömdu verknaðinn heldur að ytri aðstæður hafi ráðið þar um og að ég hafi jafnvel að einhverju leyti tekið þátt í verknaðinum.  S.s. það gerist ekki verra.

Ok afhverju er ég að segja þér þetta þar sem þú situr nákvæmlega í sömu súpunni.  Jú ég er nefnilega að lenda í þvílíkri togstreitu varðandi hver næstu skref hjá mér eru núna á meðan allir aðrir virðast vera fullkomlega vissir í sinni sök (gæfi mikið fyrir það núna).  Hef ekki farið á mótmæli sl. daga og þ.a.l. misst af byltingunni.  Svona lítur staðan út í mínum augum: Verið er að róa líffróði til að halda Íslandi á floti en framundan er líklega heimskreppa, það kemur í ljós á næstum vikum eða mánuðum.  Hluti þjóðarinnar heimtar kosningar strax og að ríkistjórnin segi af sér helst í gær.  Fjölmiðlar spila með – að einhverju leyti þjakaðir af samviskubiti yfir því að hafa sofnað á verðinu og að einhverju leiti að því að það er bara svo svakalega gaman að manipúlera svoldið ástandið, sjá hversu langt er hægt að ganga.  Nú sumir eru reyndar enn að vinna fyrir sinn herra.

Flokkarnir…ja það er nú ekki hægt að segja það í einni setningu.  Samfylkingin er að flosna upp fyrir framan nefið á okkur og enginn af leikendum þar í bæ virðist vera meðvitaður um það (reyndar held ég að sumir sitji glottandi núna yfir því að plottið þeirra virðist vera að takast – og kannski ekki erfitt verk þar sem leiðtogi þeirra er veikur og engan veginn í stakk búin til að takast á við þau vandamál sem hrannast upp – hinir eru einfaldlega ekki í stakk búnir til að átta sig á því í hvað stefnir – hmm eða var einhver að tala um formannaslag).

Vinstri grænir uppgíraðir í kosningabaráttu sem virðist vera að skila árangri.  Lofa okkur því að þeir munu slá stoltir á þær hjálpahendur sem okkur hafa borist, reyndar við umheiminn líka ef ég skil Steingrím rétt og koma okkur í gegnum þetta ja reyndar ekki sársaukalaust (þeir eru það rauntengdir) en með íslensku rollunni í fararbroddi er okkur allir vegir færir (lausnir hmm…a.m.k. engar beljur takk).

Framsókn með sína uppstokkun – sem reyndar er kannski ekki svo mikil uppstokkun ef maður byrjar að rýna vel – þetta kallast að hafa ytra réttmætið á hreinu, þ.e. ytra yfirborðið lúkkar rétt þó innviður sé enn hvorki áreiðanlegur né réttmætur, þ.e. vanhæfur.

Sjálfstæðismenn niðurlútir þar sem hugmyndafræði þeirra er búin að vera (Hannes Hólmsteinn byrjaður að mæra Obama og viðurkenna að Bush hafi nú kannski ekki verið fullkominn en…), leiðtoginn orðinn veikur og sögusagnir um að nú sé Davíð að safna kröftum og liði til að koma á fullum krafti aftur inn í pólitíkina og bjarga Íslandi (eða var það kannski sér og örfáum öðrum).  Sem reyndar yrði til þess að aðrar þjóðir myndi endanlega missa trú á að við séum fær á að bjarga okkur út úr þessu.  Hinn valmöguleikinn er ungur piltur úr sveit (eða næstum því) sem hefur vissulega þurft að hafa fyrir hlutunum og fært fórnir til að komast til valda…nei nú er ég farin bulla.  S.s. valmöguleikarnir fyrir kosningar eru ótrúlega góðir og áreiðanlegir.  Hlakka til að komast í kjörklefann, hefði helst viljað það í næstu viku.  Nú svo treysti ég öllu þessu fólki svo vel, það eru örugglega allir með hugann við að bjarga landinu en ekki eigin flokki / skinni.

Nei í alvöru ég stend frammi fyrir þeirri ömurlegu aðstæðum að velta því fyrir mér að skila auðu – sem hefur alltaf verið algjörlega ósættanlegt í mínum huga.  En bíðum við var einhver að tala um þjóðstjórn – eða jafnvel enn betra öldungaráð sem semur fyrir okkur almúgan nýja stjórnaskrá.  Nei nú verð ég að fara að hætta að glápa á teiknimyndina Happy Feet. Ég fæ af einhverjum ástæðum gæsahúð yfir þeirri firringartilfinningu sem ég upplifi.

Ég hef reyndar haldið því fram að eftir ráðgjöf frá finnum,  svíum og fleirum hafi Ingibjörg og Geir heitið því við hvort annað að það yrði ekki stjórnarkreppa á meðan að við værum enn að skoppa niður botninn.  Reynslan sýnir að annað væri katastrofa að verstu gerð.  Þ.a.l. fann ég við og við þörf til að styðja samstarf þeirra þrátt fyrir megna óánægðu með framtak þeirra og máttleysi – og leið ekki vel með þá þörf, svona svipað og fólki með þráhyggju – áráttu hlýtur að líða: veit að það er rangt og hjálpar ekki til en finn mig knúna til að gera það við og við til að sefja hræðsluna.

Nú afhverju skrifa ég þetta?  Jú þó tilfinningin sé “Palli er einn í heiminum” laumast að mér sá lúmski grunur að einhverjar örfáar sálir séu þarna úti sem líður nákvæmlega eins og mér en þora ekki að stíga fram og viðurkenna það.  Jú þá verðum við dæmd fyrir að vera ræflar og ræfilstuskur sem getum ekki tekið sjálfstæða ákvörðun, verið stolt, tekið þátt í bumbuslátti og dansi og fært löggunni túlipana.  Og ég á eflaust eftir að sitja gömul og grá eftir mögur ár með sjálfsásökun af verstu gerð vegna þess hversu mikil sófadrusla ég var í kreppunni og átti þ.a.l. þetta allt skilið eins og druslum sæmir.

— — —

Lögreglan/áhyggjur af VG

Ég er tryggur lesandi síðunnar þinnar, sérstaklega í seinni tíð, og þakka þér
fyrir að halda uppi merkjum skynseminnar á þessum síðustu og verstu, þrátt
fyrir skít og skammir úr ýmsum áttum.

Björn Bjarnason hefur lengi legið undir ámæli fyrir dekur sitt við lögregluna
og sérstakan áhuga á því að búa hana hinum ýmsu tækjum og tólum, sem oftar en
ekki koma spánskt fyrir sjónir í íslenskum hversdagsleika. Nú gæti maður samt
spurt sig hvernig atburðir síðustu sólarhringa kynnu að hafa þróast hefði
lögreglan ekki búið yfir nægilega mörgum skjöldum og hjálmum sér til varnar. Ef
við gefum okkur að þeir hefðu, skjaldar- og hjálmlausir, engu að síður viljað
vernda hinar ýmsu opinberu byggingar gegn skemmdum og halda mótmælendum í
skefjum, má ætla að þeirra eina ráð hefði verið að grípa strax til
kylfubarnings, táragass og þaðan af verra. Það er að segja, þessi góði
varnarbúnaður þeirra gerði þeim líklega kleift að standa af sér töluverðan
atgang án þess að þurfa að yfirgefa varðstöður sínar eða grípa til ofbeldis
(sem þeir reyndar gripu til að lokum, með réttu eða röngu, en mergurinn málsins
er að þetta hefði getað farið mun verr ef þeir hefðu ekki verið uppábúnir ).

Einnig finnst mér aðdáunarvert, og til marks um að (sumir) forsvarsmenn
lögreglunnar séu ef til vill ekki eins mikið undir hæl flokksins og af er
látið, að lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins skuli finna það upp hjá sjálfum
sér að greina frá því, að grjótkastarar miðvikudagskvöldsins hafi í raun verið
góðkunningjar lögreglunnar, sem fátt hafi átt sameiginlegt með hinum eiginlegu
mótmælendum. Hann hefði sem best getað þagað yfir vitneskju sinni og leyft þeim
að vaxa ásmegin, sem finna mótmælum síðustu daga allt til foráttu (reyndar
hefur skoðanakönnun Fréttablaðsins blessunarlega hjálpað til við að slá vopnin
úr höndum þeirra síðastnefndu).

Að lokum vil ég nefna áhyggjur mínar vegna vinstri grænna (kommagrýlukompleks).
Nú er sögulegt (mín söguþekking nær reyndar skammt) tækifæri til myndunar
vinstri stjórnar, sem bökkuð yrði upp af framsókn. Þetta væri að mörgu leyti
mjög fýsilegur kostur þar sem, a) samfylkingunni gæti verið viðbjargandi ef hún
skipti um félagsskap, b) vinstri grænir eru svo til eini flokkurinn sem ekki
(mér vitanlega alla vega) er flæktur inn i viðskiptalifið sem var og hét, og
gæti því verið treystandi til að gæta þess að ekki sé haldið hlífiskildi yfir
útvöldum aðilum í þeirri miklu rannsókn sem fyrir dyrum stendur, c)
sjálfstæðisflokkurinn fengi það frí sem hann nauðsynlega þarf á að halda og
gæti lagst í ítarlega sjálfsskoðun, og d) framsóknarflokkurinn væri á
einsskonar skilorði, þ.e.a.s. án ráðuneyta (sem virðist sanngjarnt þar sem þeir
eru jú sekari en syndin, en hafa tekið sér taki og lofað bót og betrun) en
myndi samt virka sem öryggisventill ef hinir nýju stjórnarflokkar skyldu ætla
fram úr sjálfum sér (þannig myndi þetta stjórnarfyrirkomulag líka hjálpa til
við að endurreisa þingræðið).

En svo kemur Steingrímur í sjónvarpið og segist ætla að skila AGS lánapakkanum
um leið og hann komist í stjórn, og þá fer maður að skjálfa á beinunum. Hvað
fleira hefur hann hugsað sér að gera, kannski neita að standa skil á Icesave
skuldum og öðrum erlendum skuldum, þá þarf líka að neita íslenskum kröfuhöfum
um sitt (semsagt sparifjáreigendum) þar sem eitt skal yfir alla ganga ef við
eigum ekki algerlega að einangrast á alþjóðavettvangi. Og það er þegar búið að
borga út peningamarkaðssjóðina, að miklu leyti með ríkisstyrk, það verður varla
tekið til baka. Ég hef alltaf haft andstyggð á hræðsluáróðrinum sem dunið hefur
yfir (m.a. í athugasemdakerfinu á eyjunni) í kjölfar skoðanakannanna sem sýna
VG á uppleið, en ég er hræddur um að Steingrímur hafi þarna á skjánum einmitt
gefið þessum áróðri byr undir báða vængi. Þess er skemmst að minnast er
landsmenn fjölmenntu í bankann til að taka út peninginn sinn, það gæti hæglega
endurtekið sig ef ekki er staðið almennilega að hugsanlegum stjórnarskiptum. Ég
er einn af þeim sennilega fjölmörgu, sem með semingi greiddu samfylkingunni
atkvæði sitt í síðustu kosningum og hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með
frammistöðu þeirra að undanförnu. Ég myndi sennilega kjósa VG núna, en þeir
verða að sýna að þeim sé treystandi til að stíga varlega til jarðar. Nú hafa
þeir tækifæri til að sýna hvað í þeim býr, þ.e. með því að gera Samfylkingunni
kleift að losa sig við Sjálfstæðisflokkinn án þess að sprengja hið viðkvæma
efnahagsástand endanlega í loft upp.

Ég er ekki þjóðin frekar en svo margir aðrir, en ég held að fæstir landsmenn
vilji að Ísland hlaupi enn lengra undan skuldum sínum, nógu slæmt er orðspor
okkar orðið. Ef íslenskir þjófar stela peningi í útlöndum stendur það að
sjálfsögðu okkur næst að bæta þann skaða (að svo miklu leyti sem við getum
auðvitað, ekki verður vatn kreist úr steini, en við þurfum að koma fram hreint
og beint til að missa ekki það litla traust sem eftir er, vítin til að varast
eru að sjálfsögðu samskipti íslenska dýralæknisins og breska svartbrýningsins).
Svo er það að sjalfsögðu líka okkar mál að endurkrefja þjófana um þýfið og
refsa þeim fyrir þjófnaðinn, nú og ef lög okkar ná ekki yfir þá getum við
einungis sjálfum okkur um kennt.

Kröfur fólksins hafa fyrst og fremst snúist um að þeir embættismenn sem
brugðust (seðlabankinn og fjármálaeftirlitið) og þeir ráðherrar sem brugðust
(fyrst og fremst fjármálaráðherra og viðskiptaráðherra) verði reknir, og að
rannsókn á háttsemi meintra fjárglæframanna fari fram fyrir opnum tjöldum og
allt verði dregið fram í dagsljósið. Þátttaka Vinstri grænna í ríkisstjórn gæti
vel svarað þessu kalli fólksins, en eins og áður sagði verða þeir að sannfæra
okkur (ég reikna með því að ég sé ekki einn um að vera tvístígandi) um að
kerfið fari ekki allt á hliðina um leið og þeir komast að. Kannski þurfa þeir
líka að gera breytingar á sinni forystu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki