
Ég og konan mín ræddum um að það væri eins og vondur andi lægi yfir bænum seint í kvöld.
Stuttu síðar las hún á blogginu að lögreglumaður hefði slasast í mótmælunum.
Ég fór út og gekk út að Stjórnarráði. Þar var vond stemming. Vont andrúmsloft. Og ekki bara vegna þess að táragasi hafði verið sleppt í bænum.
Friðrik Þór Guðmundson skrifar ágætan pistil þar sem hann furðar sig á að mótmælendur hafi ekki farið að fagna. Aðgerðin þegar þeir þustu á Samfylkingarfundinn í Þjóðleikhúskjallaranum var mjög vel heppnuð.
Ríkisstjórnin er svo gott sem fallin.
En það sem þeir eru að gera í nótt hefur þveröfug áhrif. Margir munu frekar styðja ríkisstjórnina eftir nóttina en áður.
Í einhverju þrasi á blogginu fyrr í nótt skrifaði ég að ef mótmælendurnir hérna úti væru bolsévíkar og Hjörtur Guðmundsson er hvítliði, þá ætli ég pant að vera mensévíki.
Ég stend við það.
Viðbót kl. 2.36
Ég les á Vísi að hópur mótmælenda hafi stillt sér upp fyrir framan lögreglu til að verja hana fyrir grjótkasti. Það er áhrifarík og táknræn aðgerð.