
Það talað um að fyrirtæki þurfi að fá „eðlilega“ fyrirgreiðslu í bönkum.
Þegar það kemur úr þessari áttinni verður maður pínu óttasleginn. Viðvörunarbjöllur hringja.
Varla viljum við að skuldir óreiðumanna verði afskrifaðar meðan almenningur þarf að borga undir drep. Svo ótalmörg fyrirtæki á Íslandi heyra undir hinar þröngu klíkur sem hér keyrðu allt í kaf og eignarhaldsfélög þeirra.
En ekki er góður kostur heldur að spákaupmenn komist upp með að kaupa fyrirtækin á brunaútsölu eins og Björgólfur Thor lýsti svo smekklega.
En það er vissulega úr vöndu að ráða. Ég auglýsi eftir tillögum.