
Kári sá á vefnum að Chelsea sé kannski til sölu.
– Pabbi, getum við keypt Chelsea?
– Ég held við getum það ekki.
– Þú átt að reyna að kaupa Chelsea.
– Ég hef ekki efni á því.
– Þá kaupi ég Chelsea.
– Hvað átt þú mikinn pening?
Hann nær í sparibaukana sína tvo.
– Sjáðu, ég á nóg.
– Ég held að þetta dugi ekki. Kannski fyrir einni tánögl á Frank Lampard?
– Nei, mig langar að kaupa allt liðið.
– Þú getur kannski hringt í afa þinn og spurt hvort hann vill kaupa Chelsea með þér.
– Af hverju er Chelsea dýrt ef þeir eru búnir að tapa öllum leikjum eða gera jafntefli?
– Kannski verða þeir á útsölu einhvern tíma, elskan.