
Áttum við þetta skilið?
Eins og hefur komið í ljós þá tóku stærstu bankarnir gríðarlega stöðu gegn krónunni og áttu stærstan hluta í geysilegu falli hennar.
Einn stærsti eigandi KB banka, Ólafur Ólafs tók 680 milljóna evra stöðu gegn krónunni sjálfur í gegnum sitt einkahlutafélag, Kjalar.
Hjörleifur hjá Kjalar sagði að ef þeir hefðu fengið evrurnar fyrir fall bankanna (þeir áttu ekki að fá þær fyrr en 14. okt en þá voru bankarnir fallnir) þá hefðu þeir getað selt þær fyrir heilmikla peninga vegna þess að eftir fall bankanna var ekki hægt að ná í evrur og því hefði verið hægt að selja þær á háu verði.
Það er vegna þessa meinta hagnaðarmissis sem þeir hjá Kjalar setja fram sína vitfirringslegu kröfu.
Kjalar setti 45 milljarða inn í Kaupþing í janúar 2008 og vill fá 188 milljarða til baka í október sama ár.
Kjalarmenn eru greinilega algjörlega sviptir vitinu.
Ef til stendur að gera sérstakt samkomulag við Kjalarmenn sem tryggi þeim svo mikið sem eina krónu umfram það sem hinn venjulegi Íslendingur fengi þá verður hér uppreisn.
Hvernig skilgreina menn annars stöðutöku gegn krónunni ?
Kjalarmenn halda því nefnilega fram að þeir hafi alls ekki tekið stöðu gegn krónunni heldur bara verið að verja sig gegn hugsanlegu falli krónunnar.
Það var hægt að kaupa sér vörn gegn gengislækkun en slík vörn var afskaplega dýr og þá skiptu bankinn og viðskiptamaðurinn með sér ávinningnum en viðskiptavinurinn sat einn uppi með hugsanlegt tap.
Mér sýnist þetta hjá Kjalar ekki hafa verið slíkur gjörningur heldur hrein og bein stöðutaka gegn krónunni.
Slíkar stöðutökur stuðluðu, ásamt mörgu öðru, að falli bankanna og fátæktardómi yfir íslensku þjóðinni.
Gátu menn virkilega gert allt sem þá langaði til, hversu vitfirringslegt sem það var, án þess að nokkur gerði við það athugasemd ?
FME ?????
Erlendis skjálfa menn á beinunum þegar FME kemur í heimsókn en hér tóku menn á móti FME af hroka og yfirgangi sbr. fréttin í vikunni þegar fyrrum starfsmaður FME steig fram og sagði starfsmenn FME bara hafa mætt hroka og yfirgangi þegar þeir sinntu störfum sínum í bönkum og fjármálafyrirtækjum og því fór sem fór. Engin samvinna – bara gert erfitt fyrir að sinna hlutverki sínu og svo logið fram og tilbaka.
Hugsaðu þér bara hve mikill hagnaður Kjalar hefði orðið ef bankinn hefði ekki hrunið en Kjalarmenn munu segja að hagnaðurinn væri ekki neitt því að hann hefði bara farið í að greiða þann aukakostnað sem þeir urðu fyrir á sínum erlendu lánum.
Og þarna liggur geggjunin, Kjalarmönnum er sama um gengisfall þar sem þeir eru jú varðir í gegnum bankann sinn og njóta lágra vaxta af sínum erlendum lánum og bankinn tapar ekki heldur því að hann varð jú að verja sig gegn fallinu svo að hann myndi ekki tapa á dílnum við Kjalar og þannig varð þetta til að fella krónuna, hún gat ekki annað en fallið vegna þess að Kjalar og aðrir í sömu aðstöðu gátu sett saman svona díla og gerðu það í stórum stíl (og þá undanskil ég ekki bankana sjálfa, sem svo sannarlega tóku stöðu gegn krónunni umfram það sem þeir tóku vegna Kjalardíla og annarra díla), díla sem sköpuðu þeim umtalsverðan hagnað í íslenskum krónum en settu þjóðarbúið á hliðina í leiðinni.
Á meðan gerði FME ekkert, en vissu eða a.m.k. áttu að vita, en höfðu engan slagkraft án þess að segja frá því og bankamálaráðherrann vissi ekkert þar sem hann var jú ekkert inni í bankamálum yfirleitt.
Áttum við sem þjóð þetta virkilega skilið ?
— — —
Korktappar
Halla Tómasdóttir hjá Viðskiptaráði fyrir bankahrun:
“Sjálfsprottnar reglur
Höftum og íþyngjandi reglum verði aflétt af öllum atvinnuvegum og viðskiptalífinu verði í auknum mæli gefinn kostur á að setja sér sjálft reglur.”
http://www.vi.is/news.asp?ID=526&type=one&news_id=536
Halla Tómasdóttir hjá Auði Capital eftir bankahrun:
“[…] sagði að það væri tímabært að Íslendingar hættu að vorkenna sjálfum sér. Þeir þyrftu að huga að því hvernig til stæði að byggja upp Ísland eftir bankahrunið.”
http://visir.is/article/20090108/VIDSKIPTI06/440018857
Sáuð þið myndina Des Leben Der Anderen? Þar sáust einmitt svona “korktappar”.
— — —
Þakkarbréf
Takk fyrir sköpunarverkið!
Takk fyrir Sjálfstæðisflokkur, sérstakar kveðjur til gömlu Eimreiðarstrákana sem unnu hugmyndavinnuna sem hentaði markmiðum ykkuar..
Takk æðislega Viðskiptaráð fyrir niðurrif “reglugerðarfrumskógarins” þannig að ykkur var allt heimilt!
Takk Hannes Hólmsteinn og Davíð Oddsson fyrir ykkar einurð og framsýni við að koma á frelsi fyrir suma!
Takk Geir fyrir leiða þjóðina í björgunarleiðangri fyrir þig og vini þína.
Takk Pétur Blöndal fyrir finna “hirði” fyrir féð úr þínum vinahópi!
Takk Framsókn og S-hópur fyrir velunnin störf í ykkar þágu.”
Takk Halldór, Finnur og Valgerður fyrir koma fyrirtækjunum í réttar hendur ykkar og vina ykkar.
Takk Jón Ásgeir, Björgólfur, Ólafur, Sigurður, Bjarni, Hreiðar, Pálmi, Ágúst, Sigurjón, Kjartan og allir þessir snillingar sem kenndu okkur að reka fyrirtækin sem við lánuðum ykkur óafvitandi beint út á gaddinn.
Sérstakar þakkir til Bjöggana fyrir að skuldsetja skrílinn með vitund stjórnvalda en ekki skrílsins sem þó á að borga fyrir allt!
Takk Styrmir, Matthías, Gunnar Smári, Bingi, Agnes, Hafliði o.fl. fyrir að upplýsa bara um þau atriði sem komu andstæðingum ykkar illa en sátuð á upplýsingum um ykkur og eigendur ykkar sem hefðu komið skrílnum að gagni.
Takk Samfó fyrir að sýna okkur hvernig á að verða spilltasti “jafnaðarmannaflokkur” í heimi á innan við tveimur árum.
Takk Ingibjörg, Össur og Björgvin fyrir að sitja áfram til að bjarga eigin skinni!
Takk fyrir allt ofbeldið og rangindin sem við skríllinn höfum verið beitt undafarin ár. Við vitum að þið meintuð vel og voruð bara að hugsa um ykkar eiginn hag.
Takk fyrir að boða ekki til kosninga þannig að þið getið setið áfram á meðan Ísland brennur og viðhaldið þannig ranglætinu.
— — —
Spákaupmennska
Ég þakka fyrir góðan vef og enn betri þátt.
þú hefur væntalega séð þessa frétt.
http://www.visir.is/article/20090108/VIDSKIPTI06/479957095/-1
um Kjalar.
Kjalar átti Alfesca hf og sjáðu hér:
http://www.m5.is/?gluggi=felag&felag=2
Gerir upp í EUR, græðir á falli krónunar, tekjur hækka og eigið fé
líka (mælt í krónum)
Stóran hlut í Kaupþingi, skráð í ísl krónum en á markaði í sænskum. Félagið
hagnaðist á falli krónunar. (eignir hækka og tekjur erl líka).
Hvað hafði hann við svona rosalega stóran framvirkan samning á móti
krónunni að gera?
N1 og Grandi sem hann á hlut í eru ekki svona stórir að það þurfi að verja
það sérstaklega, í raun er bara N1 í hættu vegna falls krónunar þar sem
tekjur þar eru í ísl en gjöld í erl. Grandi sem útflutningsaðili ætti að
græða á falli krónunar.
Það er ekki gjaldeyirsskiptasamningurinn er með öðrum orðum of stór fyrir
rekstur Kjalar. Þetta er ekki vörn, heldur spákaupmennska.
— — —
Greiðsludreifing
Ég mun eignast son á þessu ári, einn vinur minn kallaði það ”greiðsludreifingu”að eignast barn í dag. Ég hló en þetta er því miður satt.
Ja nú fer að sverfa til stáls.
Fékk hugmyndina um daginn eftir að Danirnir tóku einn sem setti IT fyrirtæki á hausinn og flúði. Hann fannst og var stungið inn, bíllinn, húsið allt hirt á meðan rannsókn stendur. ALGJÖRLEGA TIL EFTIRBREYTNI FYRIR OKKUR NAIVISTANA ÍSLENDINGA.
RÍKIÐ TAKI ACTAVIS UPP Í ICESAVE SKULD. Sá í Mbl að það ætti að selja Actavis. http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/01/08/fullyrt_ad_actavis_verdi_selt/
Er kauði að flýja, flytja alveg til Jersey þar sem 35 % af árlegum hagnaði Landsbanka Íslands (fyrir skatt) var komið fyrir.
Ef það er ekki hægt samkvæmt lögum, breytum lögunum. Eftir hverju er verið að bíða?
— — —
Allt upp á borðið og FME
Ætlar FME ekki að svara þessum spurningunum sem brenna á þjóðinni:
Hafa lög eða reglur hafi verið brotnar? Já? eða Nei?
Ef svarið er Já: Hvað gerir FME næst?
Þetta er ekki flóknara en þetta. …. Ætlar Jónas ekki að svara þessu?
Hér er þetta í fullri lengd http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item244883/
AÐEINS MEIRA:
Jónas hjá FME heldur áfram og dylgjar um að hann viti hver staða mála er, eða svo mætti ráða af þessum orðum úr fréttatilkynningunni hjá RUV þar sem eftir honum er haft að þetta sé: “… til viðbótar þeirri vinnu sem eftirlitið sjálft hefur haft með höndum síðustu þrjá mánuði.”
Hvað vissi Jónas?
Má almenningur ekki vita?
Á almenningur bara að borga fyrir afglöp óreiðu- og embættismanna?
Geta þessi menn aldrei talað skýrt? Eru FME að tala í krossgátum til að fela eitthvað? Eitthvað verulega ljótt? Er hægt að draga aðrar ályktanir? Hvar er gegnsæið núna?
— — —
Víkjandi lán
Pálmi lánaði FS38 2,500,000,000 krónur í víkjandi lán eins og frægt er….félagið FS38 átti engar eignir eða verðmæti þannig hann reiknaði nú ekki með að fá krónu tilbaka.
Nú bætist við almenningshlutafélagið Glitnir og KB sem lána Baugsmönnum um 20,000,000,000 krónur í VÍKJANDI lán – þ.e. lánin mæta afgangi í kröfuröðinni ef menn geta ekki borgað.
Þetta er þegar erlendir bankar hafa lokað á Baugsmenn og þeir taka til og hreinsa íslenskar stofnanir og banka.
http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/01/08/ha_vikjandi_lan_fra_glitni_og_kaupthingi/
— — —
Enn einu sinni – vaxandi skuldabyrði
Ég var afskaplega fegin að heyra að einhver er að taka upp umræðu um vísitölur. Maður er alltaf hræddur um að taka upp málefni sem tengjast manni persónulega en mig grunar að margir standi í svipuðum sporum og kannist við að misrétti hefur byggst upp milli þeirra kynslóða sem tóku annars vegar vísitölutryggð lán að ýmsu tagi og þeirra sem ekki þurftu að greiða sitt til baka með sama hætti en eiga þess í stað í lífeyrissjóðum. Sumir hafa orðið fórnarlömb vísitölu og heiðarleika vegna mismununar undanfarinna áratuga. Því skrifa ég undir þetta bréf án þess að vilja láta nafns míns getið. Setjum sem svo að ég finni beiskjuna vaxa og ofurþreytuna færast yfir með vaxandi skuldabyrði enn eina ferðina. Ef þetta er kerfisbundin mismunun vil ég að það verði skoðað nær. Ég vildi að réttmæti kerfisins sé skoðað yfir kynslóðir frá því 1944:
Ef ég reifa aðeins hugsanir mínar, sem ekki styðjast við nákvæmar tölur heldur hugboð og skoðun á lífsstíl fólks á mismunandi aldri, lífsstíl sem síðan riðlaðist þegar bankastarfsmenn fengu skyndilega forstjóralaun annarra stétta jafnvel nýskriðnir úr námi.
Það er iðulega nefnt að bjarga verði skuldugu ungu fólki, sem er rétt, en gerir kerfið sér grein fyrir því að margir á miðjum aldri eru enn í þeim sporum að vera eins og með nýkeypta íbúð og sjá ekki fram á að eignast nokkurn skapaðan hlut skuldlausan alla æfi?
Ég vil taka obbolítil nærtæk dæmi sem snúast einmitt um það hvernig vísitölur og verðbindingin hefur leikið suma en aðra síður . Þeir sem eru um 50 ára gamlir svona um það bil gætu hafa fengið námslán, húsnæðislán, neyslulán, lífeyrissjóðslán, hvað veit ég, verðtryggð en þeir eldri sloppið við slíkt einfaldlega með því að byrja fyrr í að koma sér fyrir. Fólk sem nú er um 50 hefur lent í öllum hremmingum stjórnsýslu peningamála sem hafa lýst sér um það bil svona:
Í kring um 1982 var náttúrulega gífurleg verðbólga, en laun voru doltið verðtryggð þá er ég 25 ára og ekki byrjuð að átta mig á raunverulegum stærðum og hvað það þýðir að skulda með vöxtum og vísitölubindingu og fór því í framhaldsnám og fékk námslán í 2 ár.
Svo var klippt á samræmingu vísitala lána og launa og úr verður misgengishópur sem lét heyra til sín á sínum tíma. Þeir sem voru á launum kvörtuðu, þeir sem voru á námslánum föttuðu ekki að slatti var tekinn að láni en síðan hækkkaði skuldaslattinn gífurlega hraðar en launin, 2 milljónir inn 1987 urðu að 10 milljónum 1989 og bara óx eftir það þótt endurgreiðslur væru hafnar. – Endurgreiðslur voru vísitölubundnar og tengdar við laun; til að mynda loks þegar launin urðu góð á undanförnum 3 árum urðu ársgreiðslur okkur hjóna um 500.000, en ekki lokið enn). Auðvitað reyndum við menntamennirnir að sækjast eftir vel launum störfum og mikilli vinnu og ekki síst vegna áhuga á krefjandi störfum, en líka til að standa í skilum og bíða eftir betri dögum til að lifa á sambærilegan hátt og kannski foreldrar og eldri systkini.
Í kring um 1987 – 1991 varð kerfið þannig að barnabætur fengust ekki, engar vaxtabætur á húsnæði og þar að auki var beitt jaðarsköttum á þá sem höfðu háar tekjur, ekki hátt tímakaup heldur einmitt heildarlaun óháð vinnutímalengd – engin viðvörun bara sett á eftir að börn voru fædd og lánin öll tekin.
Sumir komu sér undan ýmsu þessu með því að skrá á sig skilnað, skattaðir sem einstaklingar með börn, minni endurgreiðslur, barnagæslupláss ekki dagmömmur sem voru dýrari. Ég hélt mig í hjónabandi því ég trúði því ekki svona óréttlæti héldist til legndar, en það breyttist ekkert; Sumir fengu stuðning og hösluðu inn svartar tekjur um leið og félagslega kerfið tók tillit til einstæðra og skuldugra sem betur fer fyrir þá sem raunverulega voru einstæðir og heiðarlegir.
Svo féll íbúðaverð og í kring um 1995 voru áhvílandi lánin jafnhá og fasteignaverð á markaði. Við hreinlega höfðum ekki undan að borga af á vöxtum og áttum um 10% í íbúð og bílskrjóð, atvinnuleysi í kring um 1988 – 1990 hafði ekki hjálpað í okkar tilfelli, við hjónin vorum í fiskvinnslu og verkamannavinnu eftir framhaldsnám, áður en störf sem hæfðu menntun fengust, en að hluta til fór ég í einkahark á samdráttartímum til að fá í það minnsta stopular tekjur með börnin kornung.
Við seldum, undirbjuggum flutning út á land, leigðum og settum einhverja peninga í hlutabréf til að reyna að fá einhverja vexti 1999 og meira en misstum það allt 2001 hugbúnaðarbólan, aðalvon hlutabréfa-markaðarins sem svo fjálglega var rætt um, mörgum tóks að græða, margir töpuðu.
Þá byrjuðum við upp á nýtt árið 2004 – 2005 með fullt af skuldum á bakinu og 100% bankalán (til helminga í erlendu) með veði í frænkum og hálfníræðum foreldrum. Og núna þegar við höfum staðið í skilum á íbúð í 5 ár, sem við fengum á mjög góðu verði, greitt niður skuldir um nær 500 þúsund á ári aukalega, erum nú búin að missa hluta af lífeyrinum sem okkur var gert að setja í bankasjóðina og viðbótarlífeyri að auki heyri ég í kátum félögum sem eru um 55 ára gamlir og eru gott sem skuldlausir en vilja ekki hagga við neinu af því að vísitölutrygging er auðvitað á þeirra lífeyri en var ekki lánum. Þeir ljúfu félagar eiga hús sín skuldlaus, hafa verðið á 2 bílum, hafa notið skíðaferða og sólarferða og borgarferða 2svar – 4sinnum á ári, nutu niðurgreiddra dagvistargjalda í óskráðri sambúð en endurnýjuð hjúskap á 5. barni þegar þau voru öll komin í skóla.
Nú geta lukkunar pamfílar dregið úr vinnu á meðan ég sé fram á að þurfa enn að afla hárra tekna með ómældri vinnu á næstu árum og drepast svo. Vilja þeir hólpnu leggja til enduruppbyggingar samfélagsins eða ætla bara að vera kátir með að eignaskattar og erfðaskattar hafa verið svo gott sem afnumdir á meðan ég skuldaselurinn á að endurgreiða nokkrum sinnum þær skuldir sem fall bankanna hefur einmitt sett á gettu hvern og unga fólkið?! – Nú gildir að reyna og rembast að taka aukavaktir, taka aukavinnu, sjálfstæð verkefni, vinnu í sumarfríi, kvöldvinnu, kennslu semja fleira til sölu…. til þess að standa í skilum.
Fjölskylda mín er hörkudugleg öll, heiðarleg, borgandi fyrir tannlækningar og fyrirbyggjandi leikfimi, reykir ekki, dröslar börnum til fjölbreyttara mennta eins og sjálfri sér í endurmenntun, hófsöm (að jafnaði út að borða með börnin 1 sinni á 5 ára fresti), hefur eitt sinn farið saman til útlanda frá fæðingu fyrsta barns 1985 hefur aldrei átt meira en einn bíl í einu og þá notaðan, 5 manns í 125 fm, núna með 3 uppkomin börn sem ekki komast að heiman vegna dýrtíðar en hafa þó unnið sumarvinnu frá 14 ára aldri.
Það er þessi sort sem einmitt lendir í súpunni og kannski eru einmitt margir nákvæmlega mínum vístölu tryggða aldri um 50 ára +/-3 ár og yngri og lenda tvímælalaust í áframhaldandi blankindahringnum. Getur verið, já getur það hugsanlega verið, að þeir sem skipa ríkisstjórn séu ýmist eldri eða langtumyngri en þessi hópur sem svo sannarlega er nógu góður til að fá góð laun á alþjóðlegum vinnumarkaði en hefur kosið að standa sig og byggja réttlátt íslenskt þjóðfélag?
Ef þetta er helber öfund af minni hálfu þá látum við málin niður falla.