fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Þorvaldur um blaðamennsku og fjárböðun

Egill Helgason
Fimmtudaginn 8. janúar 2009 10:58

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Gylfason brýnir íslenska blaðamenn til dáða í pistli í Fréttablaðinu í dag. Þar vekur hann líka máls á grunsemdum sem hafa legið í þagnargildi – um að bankarnir hafi hugsanlega stundað peningaþvætti – fjárböðun – fyrir rússneska auðmenn.

Hér er niðurlag greinar Þorvaldar:

Þegar allt virtist leika í lyndi, höfðu útlendingar engan sérstakan áhuga á íslenzkum innanlandsmálum. Nú er staðan gerbreytt. Neyðin steypist nú grimm og köld yfir íslenzk heimili og fyrirtæki sem fæst sleppa undan krumlunni. Tugþúsundir erlendra sparifjáreigenda hafa tapað geipifé á viðskiptum við íslenzka banka. Minningin um óðaverðbólgu áranna milli stríða lifir enn í þýzkum fjölskyldum, svo að Þjóðverjar hafa megna óbeit á fjármálaóreiðu. Þeir hefðu vísast við eðlilegar aðstæður lagt kapp á að tryggja Íslandi aðgang að Evrópusambandinu við vildarkjörum, en nú er velvild þeirra í uppnámi. Fórnarlömb bankanna utan lands og innan vilja nú fá að vita, hvernig allt var í pottinn búið. Þau vilja fá að vita, hvers vegna stjórnvöld leyfðu bönkunum að vaxa landinu yfir höfuð á örfáum árum og skilja eftir sig sviðna jörð. Þau vilja fá að vita, hvers vegna ríkisstjórnin hefur ekki enn fengizt til að fela útlendingum rannsókn bankahrunsins. Þau vilja vita, hvort skilanefndir bankanna hafa selt eignir út úr bönkunum á gráu svæði milli greiðslustöðvunar og gjaldþrots. Þau vilja fá að vita, hvort þrálátur orðrómur um, að bankarnir hafi einn eða fleiri stundað fjárböðun fyrir rússneska auðkýfinga, á við rök að styðjast. Það yrði varla til að auka hróður Íslands í útlöndum, ef íslenzkir blaðamenn héldu áfram að leiða málið hjá sér og létu erlendum blaðamönnum einum eftir að draga fram sannleikann. Eitt er víst: erlendir blaðamenn munu halda áfram að fletta ofan af bankahruninu, aðdraganda þess og úrvinnslu, að kröfu erlendra lesenda. Íslendingar mega ekki láta sitt eftir liggja, hvorki blaðamenn né aðrir. Ærinn er samt sæmdarmissirinn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki