
Hér er ágæt grein um bandaríska fjármálakerfið úr New York Times. Höfundurinn er Michael Lewis.
Fjallar meðal annars um Bernard Madoff og hvernig hann komst upp með svik sín.
Hlutur bandaríska fjármálaeftirlitsins er ekki fagur. Segir að það hafi verið skapað til að vernda fjárfesta fyrir rándýrum á markaðnum. En hlutverk þess hafi snúist við og orðið eiginlega þveröfugt.
„Indeed, one of the great social benefits of the Madoff scandal may be to finally reveal the S.E.C. for what it has become. Created to protect investors from financial predators, the commission has somehow evolved into a mechanism for protecting financial predators with political clout from investors.“
Er ekki hægt að segja hið sama um Fjármaálaeftirlitið hér? Var það ekki einmitt í vinnu fyrir rándýrin – hákarlana?