
Þegar horft er á frammistöðu Kína í mannréttindamálum nægir ekki einungis að horfa á þrælabúðirnar í ríkinu sjálfu, kúgunina og morðin í Tíbet og yfirganginn gagnvart Tævan.
Kínastjórn er einnig styrktaraðili nokkurra af verstu harðstjórnum í veröldinni: Í Norður-Kóreu, Burma og Súdan.
Stephen Spielberg hætti starfi sínu sem listrænn ráðgjafi í Peking vegna þess að Kína heldur verndarhendi yfir stjórninni í Khartoum sem ber ábyrgð á fjöldamorðunum í Darfur.
Kínastjórn hefur verið að gera sér dælt við fleiri harðstjóra í Afríku, þar á meðal Robert Mugabe í Zimbabwe sem hefur kerfisbundið verið að eyðileggja land sitt. Vestræn ríki hafa reynt að einangra Mugabe; Kínverjar halda lífi í stjórn hans.
Kínverjum láta sig engu varða mannréttindi í löndum sem þeir versla við. Þeir blanda ekki saman pólitík og viðskiptum. Vestræn ríki eru alls ekki fullkomin í þessu tilliti, en þau eru þó mjög viðkvæm fyrir þrýstingi. Kínverjar dæla upp olíu í Súdan og selja vopn til hersins sem fremur fjöldamorð í Darfur.
En Kínverjum er slétt sama. Þess vegna eiga harðstjórar og glæpamenn hauk í horni þar sem Pekingstjórnin er.