fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Sarko gerir Bretum tilboð

Egill Helgason
Föstudaginn 28. mars 2008 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

w032641a.jpg

Timothy Garton Ash skrifar merkilega grein í Guardian í gær þar sem hann fjallar um heimsókn Sarkozys Frakklandsforseta til Bretlands.

Í heimsókninni hefur Sarkozy látið allt öðruvísi en fyrirrennarar hans á forsetastóli. Hann á ekki nógu sterk orð til að þakka Bretum fyrir að hafa barist fyrir Frakka í stríðinu, hann lofar og prísar breskt þjóðfélag.

Sarkozy er um leið að gera Bretum tilboð. Að þjóðirnar taki upp mikið og náið samstarf innan Evrópusambandsins og Nató. Á móti segist Sarkozy vera reiðubúinn til að gera Frakkland aftur virkara innan Nató – sem það hefur ekki verið frá tíma De Gaulles.

Garton Ash telur þetta vera einstakt tækifæri. Evrópa með Breta og Frakka í vinfengi geti orðið sterkara bæði í efnahagslegu og utanríkispólitísku tilliti. Hann álítur að Gordon Brown skilji þetta. Hins vegar velti það ekki síður á Íhaldsflokknum sem allt bendir til að muni komast til valda í Bretlandi innan tíðar, kannski ekki seinna en á næsta ári.

Garton Ash segir að Íhaldsflokkurinn sé fullur af eldklárum mönnum sem eigi að geta séð hvílíkar pólitískar leikfléttur geti sprottið af heimsókn Sarkozys.

Hins vegar sé ekki líklegt að flokkurinn muni nýta sér þetta. Hann sé nefnilega enn í aðra röndina the stupid party – eins og hann hefur stundum verið kallaður í gegnum árin.

Sögulega séð er samband þessara ríkja auðvitað stórmerkilegt. Þau hafa verið að keppa síðan á miðöldum. Örlögin höguðu því svo að Bretar og Frakkar börðust saman í tveimur stórstyrjöldum tuttugustu aldarinnar.

Margir á Bretlandi telja reyndar að það hafi verið misskilningur – þeir hafi barist við rangan aðila. Hinn raunverulegi óvinur sé Frakkland.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 klukkutímum
Sarko gerir Bretum tilboð

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Mate flytur sig um set
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt