
Síðunni hefur borist eftirfarandi bréf frá ágætum kunningja:
„Nú hafa bankarnir tekið við hlutverkinu sem sjávarútvegurinn gegndi áður.
Ef rekstarkostnaðurinn var að sliga fiskvinnsluna þá var gengið bara fellt og þannig lækkaði kostnaðurinn og verðið á afurðunum hækkaði.
Reksturinn er greinilega ekki að ganga hjá KauptHIEF… (var það ekki það sem John sagði í auglýsingunni?) LÍ og Glitni.
Reksturinn gengur ekki og þá taka þeir sig saman og fella gengið ( eftir að hafa sankað að sér evrum m.a. með því að loka aðgengi erlendra banka að krónukaupum en engin gat keypt krónur nema í gegnum íslenskan banka þangað til í dag ). Rekstrarkostnaðurinn lækkar um 40% og eignirnar í krónum aukast um 30%.
Er ekki Reykjavík bara enn eins og Auden lýsti henni, barinn á Borginni etc, nema nú er Sigurður Nordal ekki maðurinn til að hitta heldur Mr. Einarsson og Mr.Gudmundsson.“