fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Auden í Kiljunni

Egill Helgason
Miðvikudaginn 26. mars 2008 10:08

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

auden_wh_01.JPG

Í Kiljunni í kvöld verður fjallað um enska skáldið W.H. Auden og tvær Íslandsferðir hans. Auden kom hingaði í fyrra skiptið 1936, skrifaði ferðabók og orti frægt kvæði sem Magnús Ásgeirsson þýddi.

Hann kom hingað í annað sinn snemma á sjöunda áratugnum og sat þá frægt kokkteilboð með Tómasi Guðmundssyni, Gunnari Gunnarsyni og Þórbergi Þórðarsyni.

Ögmundur Bjarnason læknir hefur þýtt mikið af kvæðum eftir Auden en hann hefur einnig ort stórsnjallt kvæði þar sem er sérstaklega einblínt á seinni ferð Audens til Íslands.

Má segja að þetta kvæði Ögmundar sé tilefni þess að nú er fjallað um Auden.

Annars þekkja líklega flestir Auden vegna kvæðisins Stop All the Clocks sem var flutt á magnaðan hátt í kvikmyndinni Fjögur brúðkaup og jarðarför.

Í þættinum verður rætt við slóvenskan rithöfund, Brinu Svit, en hún hefur dvalið í Gunnarshúsi undanfarið við að skrifa bók sem hún nefnir Nótt í Reykjavík. Brina Svit skrifar núorðið á frönsku og hefur fengið verðlaun fyrir bækur sínar frá frönsku akademíunni.

Bragi er á sínum stað í þættinum sem og Kolbrún og Páll Baldvin, en þau ætla að fara yfir glæpasögurnar íslensku sem komu út fyrir jólin.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 klukkutímum
Auden í Kiljunni

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Mate flytur sig um set
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt