
Er ekki dálítið skrítið að leita að sökudólgum vegna falls krónunnar? Það hefur lengi verið vitað að hún er ofurseld spákaupmennsku, jafnvel enn fremur en aðrar hávaxtamyntir. Krónan hefur hækkað vegna spákaupmennsku – og svo lækkar hún vegna þess að spákaupmenn í bönkunum eru að braska með hana.
Framkvæmdastjóri ASÍ segir að þetta sé „grafalvarlegt mál“. Seðlabankastjóri lætur eins og hann sé undrandi.
En þetta er einfaldlega kerfið sem við höfum búið við í peningamálastjórnun. Það er ekki eins og hafi ekki verið margoft varað við því að krónan myndi taka dýfu. Við höfum haft nógan tíma til að breyta þessu kerfi, en til þess hefur ekki verið vilji.