fbpx
Þriðjudagur 24.febrúar 2026
Eyjan

Ævintýraleg menningarmiðstöð

Egill Helgason
Þriðjudaginn 25. mars 2008 09:17

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Borg lista og vísinda í Valencia – Ciudad de las artes y de las ciencias – er stórkostlegt byggingalistaverk. Eins og eitthvað sem hefur fallið utan úr geimnum. Arkitektinn er spænskur snillingur, sjálfur frá Valencia, Santiago Calatrava, fæddur 1950.

img_0693.jpg

Borgin er byggð í gömlum árfarvegi sem hefur verið breytt í mikinn skemmtigarð og skiptist í nokkur meginsvæði. Stærst eru listamiðstöðin og vísindasafnið. Í síðarnefndu byggingunni eyddum við Kári broti úr tveimur dögum og náðum ekki að skoða nema hluta af safninu.

img_0758.jpg

Form bygginganna er svo tilkomumikið að það er hægt að ganga þarna um dag eftir dag og horfa bara. Stærðin er ótrúleg. Sagt er að vísindasafnið sé í laginu eins og beinagrind risaeðlu.

img_0793.jpg

Sjávarsafnið, Oceanografic, inniheldur glæsilegasta sædýrasafn Evrópu með hákörlum, rostungum, mörgæsum, höfrungum, hvölum og alls konar fiskum. Glæsilegast er að ganga í gegnum risastóran vatnstank neðanjarðar og horfa á hákarla og skjaldbökur og suðræna fiska synda allt í kringum sig.

white_shark_valencias_oceanografic.jpg

Hemisferic er í laginu eins og auga. Þetta er hvelfing þar sem hægt er að skoða líkan af himingeimnum en er líka bíóhús þar sem eru sýndar þrívíddarmyndir. Við vorum heppnir og fengum miða.

img_0804.jpg

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 klukkutímum
Ævintýraleg menningarmiðstöð

Pennar

Landráðamenn

Mest lesið

Nýlegt

Mate flytur sig um set
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann

Þorsteinn Pálsson skrifar: Að meðtaka eða meðtaka ekki veruleikann
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“

María Rut Kristinsdóttir skrifar: „Silence like a cancer grows“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum

Haraldur Ólafsson skrifar: JÁ þýðir já við himinháum reikningum og engum tækifærum
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi

Björn Jón skrifar: Rótfesta í hverfulum heimi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum

Grípur til umdeildrar setningar úr kvikmynd til að svara eftirmanni sínum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt

Svarthöfði skrifar: Vonlaust verkefni hjá Framsókn – formannsframbjóðendur með sjálfseyðingarhvöt