fbpx
Þriðjudagur 19.ágúst 2025
Eyjan

Kosningarnar í hnotskurn, flokkarnir nota tónlistina, mislukkuð sameining

Egill Helgason
Fimmtudaginn 3. maí 2007 16:52

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra rifjar upp gamla takta úr hljómsveitinni Upplyftingu í baráttulagi Framsóknar sem finna má á vef flokksins. Magnús hefur engu gleymt þegar hann syngur lagið Árangur áfram, ekkert stopp með barnakór, hljómar pínulítið eins og hann sé frá Norður-Kóreu, eða kannski er þetta bara ungi framsóknarmaðurinn?

Lagið má heyra með því að smella hér, fara í gluggann á síðunni og fletta niður á Árangur áfram.

Annað lag fer sem eldur í sinu um netið. Það er söngur Samfylkingarinnar, saminn af Róberti Marshall, Guðmundi Steingrímssyni og Simon & Garfunkel, fluttur af Róberti og Guðmundi. Viðlagið gengur út á að þeir tilheyri eina stjórnmálaflokki á Íslandi sem tali af skynsemi um pólitík.

Þetta lag má heyra með því að smella hér.

Spurning hvort þurfi aftur að taka fram á-in þrjú? Ég verð samt að viðurkenna að ég er strax kominn með framsóknarlagið á heilann.

Svo bíðum við í ofvæni eftir lögum frá hinum flokkunum.

— — —

Kosningarnar í hnotskurn:

Sjálfstæðisflokkur þarf ekki að segja neitt.

Framsókn getur ekki sagt neitt.

Vinstri græn þora ekki að segja neitt.

Frjálslyndir segja eitthvað en það tekur enginn mark á þeim.

Samfylkingunni dettur ekkert í hug að segja.

— — —

Þorvaldur Gylfason skrifar snjalla grein í Fréttablaðið í morgun þar sem hann segir að sameining stjórnmálaflokka hafi mistekist.

Nei, hann á ekki við sameiningu vinstri flokkanna, heldur hefur Þorvaldur miklu lengra sjónarhorn á stjórnmálasöguna.

Hann er að tala um sameiningu Íhaldsflokksins og Frjálslynda flokksins árið 1929 þegar stofnaður var Sjálfstæðisflokkurinn.

Þorvaldur er þeirrar skoðunar að þá hafi frjálslynd öfl verið kveðin í kútinn á Íslandi en Íhaldsmenn fengið að ráða.

Þetta er athyglisverð söguskoðun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig

Málþæfður minnihluti þarf að átta sig
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?
Eyjan
Fyrir 2 vikum

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“

Guðrún krefst þess að Kristrún segi eitthvað – „Við þurfum að tala skýrt“