fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Endurreisn Lækjartorgs,sígaunar í Reykjavík, sjálfsmynd Akureyrar

Egill Helgason
Fimmtudaginn 26. apríl 2007 20:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Atli Heimir Sveinsson birtir frábæra grein í Morgunblaðinu í morgun. Atli hvetur til þess að fenginn verði einhver af bestu arkitektum í heimi til að byggja þarna hús. Atli skrifar:

"Ég legg til að fenginn verði frábær, heimsþekktur arkitekt erlendis frá, til að hanna hús á brunarústunum. Í hugann koma nöfn eins og Gehry, Foster, Kolhaas, Piano, Mayer, Larsen og Ando o.fl.

Húsið gæti kallast á við tónlistarhöllina væntanlegu.

Arkitektinum yrði alið að teikna hús, miðpunkt höfuðborgarinnar, sem allur umheimurinn myndi dást að og afkomendur okkar vera stoltir af um ókomna tíma.

Við höfum góða reynslu af toppmönnum í húsagerðarlist. Norræna húsið etir Alvar Aalto er gott dæmi.

Nú er tími og tækifæri til að hugsa stórt!"

— — —

Eftir því sem maður hugsar það betur virkar hún fáránlegri þessi hugmynd að endurreisa kumbaldana við hið dapurlega Lækjartorg. Þessi hús voru aldeilis hræðileg. Ein ríkasta þjóð hlýtur að geta leyft sér eitthvað metnaðarfyllra en að byggja þarna fornminjar sem enginn hafði hvort sem er sýnt áhuga í marga áratugi. Götumyndin þarna er ekkert til að varðveita, hún var tætingsleg og ljót.

Þarna þarf líka að vera almennileg starfsemi. Ekki handprjónabúð eða enn eitt kaffihúsið. Manni dettur til dæmis í hug myndarlegt bíó, jafnvel aðstaða fyrir kvikmyndasafnið – eitthvað sem tryggir líf allan daginn, ekki bara á kvöldin um helgar. Lífið þarf að smitast út á allt Lækjartorg sem þarf að hugsa alveg upp á nýtt.

Atli talar um að fá erlenda arkitekta til að gera þetta. Það held sé alveg rétt að hleypa ekki Íslendingum nálægt því.

— — —-

Einhver stærsti atburður ársins varð annars í bænum í dag. Þegar ég var að alast upp sætti tíðindum ef sást útlendingur á götum Reykjavíkur, hvað þá fólk af öðrum kynþætti. En nú bar svo við að hópur sígauna var kominn til landsins, konurnar í hinum litskrúðugu klæðum þessa þjóðflokks, karlarnir að spila á harmonikkur og sníkja fé.

Er ekki nokkuð víst að þetta er í fyrsta skipti að sígaunar koma til Íslands? Ætli þeir hafi erindi sem erfiði – það er kalt hérna, langt og dýrt að komast og verðlagið óskaplegt?

Og hvernig skyldi þeim hafa dottið í hug að koma hingað? Gæti verið að þetta sé einhvers konar innlegg í kosningabaráttuna?

— — —

Einu sinni voru á Akureyri fáein verksmiðjuhús á vegum Sambandsins. Í daglegu máli innfæddra kölluðust þau Litla Hong Kong. Nokkrir bræður á Akureyri ráku bílaleigu og voru dálítið flottir á því. Þeir voru kallaðir Kennedy bræðurnir. Svo opnaði Listagilið með alls kyns menningarstarfsemi. Þá horfði ég að sjónvarpsmann og listaspíru á Akureyri velta því fyrir sér í sjónvarpsþætti hvort Akureyri kynni að vera París norðursins.

Þetta rifjaðist upp núna um daginn þegar ég sá í sjónvarpinu viðtal við ferðamálafrömuð að norðan sem var lýsa því hversu mikið væri um að vera á Akureyri og margt í boði fyrir ferðamenn. Svo klykkti hann út með þessum orðum:

"Já, við keppum helst við London og Kaupmannahöfn."

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki