fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Kosningamál, kvennastjórn, háskólar, dollaragrís á teini

Egill Helgason
Mánudaginn 12. mars 2007 20:03

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hvernig ræðst það hvað kemst á dagskrá fyrir kosningar? Stundum finnst manni það hálf dularfullt, eins og til dæmis með fiskinn sem skal alltaf vera til umræðu með einum eða öðrum hætti. Í öðrum tilvikum eru býsna vel skipulagðir þrýstihópar að verki. Í gær birtist ályktun frá Framtíðarlandinu þar sem flokkarnir eru hvattir til að ræða umhverfismál fyrir kosningarnar. Að sumu leyti er þessi ályktun óþörf. Það er verið að ræða umhverfismál, virkjanir og stóriðju – kannski langt umfram áhuga meginþorra kjósenda.

Enn sem komið er snýst umræðan hún afskaplega lítið um efnahagsmál, skatta, atvinnustefnu – og hverjum sé best treystandi til að fólkið í þessu landi hafi það nokkuð gott áfram? Gildir gamla mottóið It´s the economy, stupid ekki í þetta skipti? Ef svo er gætum við verið undir áhrifum þess sem farið er að kalla Stokkhólms-heilkennið. Um það fjalla ég kannski síðar.

— — —

Fulltrúum gamla fólksins og öryrkja virðist ekki ætla að ganga jafnvel að koma málum sínum á dagskrá og undanfarin ár. Hins vegar hefur femínistum orðið mjög vel ágengt. Að hluta til er það þrýstingur frá þeim sem ræður því að komin eru fram mjög umdeild drög að frumvarpi um jafnréttismál – sem Sjálfstæðisflokkurinn á reyndar aldrei eftir að samþykkja í óbreyttri mynd. Samfylkingin og VG keppast um hvor flokkurinn sé jafnréttissinnaðri. Konurnar hafa yfirgefið Ingibjörgu Sólrúnu en masse og samfylkingarkonur sem héldu að hún hefði kvennafylgið í ævilangri áskrift vita ekki sitt rjúkandi ráð.

Styrmir skrifar Staksteina og boðar að vinstristjórn verði kvennastjórn. Að verði hún mynduð, þá verði hún að meirihluta skipuð konum. Það er reyndar bráðsniðug hugmynd. Hins vegar er spurning hvernig körlum sem telja sig vera fremst í goggunarröðinni líst á það?

Hvaða konur eru ráðherraefni í Samfylkingu fyrir utan Ingibjörgu Sólrúnu? Jóhanna Sigurðardóttir? Þórunn Sveinbjarnardóttir? Ásta Ragnheiður?

Hvað segja þá Össur, Björgvin G., Kristján Möller, Ágúst Ólafur, Lúðvík Bergvinsson?

Hvaða konur eru ráðherraefni hjá Vinstri grænum? Kolbrún Halldórsdóttir líklega? Og fyrir utan hana – kannski nýgræðingarnir Guðfríður Lilja og Katrín Jakobsdóttir?

En auðvitað hlýtur maður að ætla að tveir ráðherrastólar séu fráteknir fyrir Steingrím og Ögmund.

— — —

"Það er nauðsyn að fá háskóla," segja þeir á Vestfjörðum. Bara svona eins og talað var um togara í gamla daga. En háskólar eru menntastofnanir, ekki byggðaaðstoð. Það er þegar orðið alltof mikið af meintum háskólum í þessu landi.

— — —

Birti að gamni myndina hér að ofan sem er komin af vef Ungra vinstri grænna. Það er gott að þeir eru ekki alveg búnir að gleyma róttækninni, þótt ýmislegt bendi til að flokksforystan ætli að að vera nógu skikkanleg til að hægt sé að bjóða henni inn á skrifstofur bankastjóra.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki