fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Obama blottar sig, átakanleg kvennakúgun, Hirsi Ali

Egill Helgason
Föstudaginn 9. mars 2007 19:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Oft er maður steinhissa yfir því hvað pólitíkin í Ameríku er á lágu plani. Nú er hinn bráðefnilegi Barak Obama búinn að læra að beygja sig undir gyðingalobbíið. Í ísraelska dagblaðinu Ha´aretz stóð að hann hefði "tekið jafn sterkt til orða og Clinton, sýnt jafn mikinn stuðning og Bush og verið jafn vinsamlegur og Giuliani". Áheyrendur við þetta tilefni voru auðugir gyðingar.

Obama sagði að hann vildi að haldið yrði áfram að þróa eldflaugakerfi með Ísraelsmönnum svo þeir gætu varist árásum frá Gaza. Þar hafa Palestínumenn náttúrlega feikilegt vopnabúr! Ekki hafði hann uppi eitt gagnrýnisorð á Ísrael – nefndi ekki að Ísraelar drápu 660 Palestínumenn í fyrra, þar af 141 barn.

En svona telja bandarískir stjórnmálamenn sig þurfa að gera ef þeir ætla að eiga von á að ná kosningu sem forseti. Hillary Clinton hefur margoft lýst yfir eindregnum stuðningi við Ísrael – og komið með margar heimskulegar og óheiðarlegar staðhæfingar af því tilefni.

Það má vera að þetta sé hinn pólitíski veruleiki vestra. En ómerkilegt er það.

Á sama tíma les maður í fréttum að farið sé að gera aðsúg að mannvininum Jimmy Carter, fyrrverandi forseta, bara af því hann hefur farið til Palestínu og séð ástandið með eigin augum. Um þetta hefur Carter skrifað bók þar sem hann segir sannleikann – nefnilega að Ísrael er ofbeldisinnað apartheidríki sem beitir alls konar óþverrabrögðumtil að leggja undir sig land Palestínumanna.

Það er staðreynd sem ekki er hægt að komast undan.

Svo les maður annað veifið þvælu um að andsemítismi færist í vöxt á Vesturlöndum. Jú, kannski gerir hann það. En þá fyrst og fremst sá andsemítismi sem beinist gegn þeim sem eru af arabaættum.

— — —

Í gærkvöldi sá ég á frönsku sjónvarpsstöðinni Arte kvikmynd sem heitir Osama. Hún fjallaði ekki um terroristann fræga, heldur er þetta fyrsta kvikmynd sem gerð er í Afganistan eftir fall Talibanastjórnarinnar. Þetta er einhver átakanlegasta mynd sem sem ég hef séð – svo mjög að nístir í hjartað. Hún fjallar um stúlkubarn sem lendir á vergangi eftir að móðir hennar hverfur eftir mótmælagöngu kvenna sem hafa misst eiginmenn sína og geta ekki séð sér farborða sökum þess að þær mega ekki stunda vinnu.

Til að svelta ekki klæðir stúlkan sig sem strák og fer að sækja skóla. Það kemst upp um hana og hún sætir hroðalegri niðurlægingu. Að lokum er hún leidd fyrir dómara sem situr í stórum hópi illúðlegra karla. Stúlkan er reyndar sýknuð, en með því fororði að hún skuli, barnung, verða kona klerks nokkurs, afgamals karlskröggs.

Myndin endar þar sem stúlkan er lokuð inni á heimili karlsins. Vonin er engin.

Ég hef löngum furðað mig á því hvers vegna femínistar á Íslandi einblína ekki meira á stöðu kvenna í ríkjum íslams. Hvar er alþjóðahyggjan? Hví eru femínistar ekki að lesa bækur eftir konu eins ogAyan Hirsi Ali – eða jafnvel bjóða henni til Íslands? Skín þarna kannski enn einu sinni í gegn hinn gagnkvæmi skilningur milli íslamista og vinstri manna á Vesturlöndum sem birtist meðal annars í hinu afkáralega máli þegar deilt var um dönsku skopmyndirnar og sófakommar voru komnir í lið með þeim sem heimta ritskoðun og brenna sendiráð?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki