fbpx
Miðvikudagur 20.ágúst 2025
Eyjan

Byrgið, kvenskörungar, Skuggahverfi, stjórnarskrá

Egill Helgason
Fimmtudaginn 18. janúar 2007 17:59

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er dálítið erfitt að vera í bendileik með Byrgið – að finna einhvern sérstakan sökudólg í kerfinu. Menn hafa staðnæmst við Birki Jónsson, en ég held að hann muni sleppa með skrekkinn. Ég man ekki betur en að flestir pólitíkusar og mestöll kjaftastéttin hafi tekið andköf af hneykslun þegar Byrgið missti húsnæði sitt í Rockville á sínum tíma.

Mennirnir í Byrginu virkuðu nefnilega traustir – eins og þeir vissu hvað þeir væru að gera. Maður hafði spurnir af því þar sem þeir fóru í fíkniefnagreni og náðu í vesalingana sem þar héldu til. Þetta þótti býsna flott. Þeir höfðu líka þessa ákveðnu tegund af karlmennsku sem er algeng hjá gömlum þurrkuðum drykkjumönnum – það var greinilegt að þeir höfðu marga fjöruna spopið – menn hafa tilhneigingu til að beygja sig auðmjúklega fyrir svona reynslu.

Sjálfsagt var ríkið líka guðslifandi fegið að láta þessa menn sjá um þessa starfsemi. Það er vanþakklátt hlutverk að reyna að lækna dópista og drykkjumenn. Það er líka ljóst að þetta er vandamál sem er ekki að fara neitt. Fíkniefnaneysla eykst hvarvetna í heiminum. Líka hér. Það verður nóg af sárveikum dópurum næstu áratugina. En kannski þarf að skipuleggja þetta starf aðeins betur – einkaframtakið er gott en hví er þetta nánast eini geiri heilbrigðiskerfisins þar sem það er allsráðandi?

Annars er þetta mál allt komið í rugl því hálf þjóðin er að skoða klámmyndir af forstöðumanni Byrgisins á netinu. Um annað er ekki talað í bænum. Hvernig kemst svona í almenna dreifingu?

— — —

Tveir kvenskörungar eru í fréttum í dag. Annars vegar Valgerður Sverrisdóttir sem hefur blómstrað í starfi utanríkisráðherra. Kannski af því henni er svo létt að sleppa úr iðnaðarráðuneytinu – það er kannski ekki grín að vera ráðherra og horfa á sviðsett rán og morð á sér í skaupþætti. En Valgerður hefur verið að sýna að í henni er töggur. Ræða hennar um öryggismál í Háskólanum í dag var merkileg, gott hjá henni að ætla að birta gömul leyniskjöl. Hún segir að Ísland eigi ekki að hafa neinn her. Hún sýnir kjark þegar hún tjáir sig um evruna. Hún er að endurskipuleggja stjórnskipulag ráðuneytisins. Hún má eiga það Valgerður að hún er dálítill töffari.

Hinn kvenskörungurinn er Halla Gunnarsdóttir sem býður sig fram til forseta Knattspyrnusambands Íslands. Ég ætla ekki að segja annað en að ég lýsi yfir fullum stuðningi við Höllu í embættið. Er eiginlega viss um að hún verði kjörin. Þessi atvinnumannafótbolti karlanna er orðinn eitthvað svo sjúskaður.

— — —

Að hugsa sér. Stjórnarskrárnefndin hefur setið í tvö ár og komist að samkomulagi um að breyta einu litlu ákvæði í stjórnarskránni. Nú eru þeir búnir að fresta öllu til næsta kjörtímabils. Þetta er obboslega lélegt.
— — —

Á maður ekki að geta fengið lúxusíbúðirnar í Skuggahverfinu fyrir útsöluprís fyrst svona er komið?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni

Thomas Möller skrifar: Meiri bjartsýni – minni svartsýni
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur

Björn Jón skrifar: Vestrænt sjálfshatur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla

Thomas Möller skrifar: Meiri fræðsla, minni hræðsla
EyjanFastir pennar
Fyrir 2 vikum

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans

Óttar Guðmundsson skrifar: Stjörnustund ráðherrans
Eyjan
Fyrir 2 vikum

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?

ESB-aðild: Eldstormur geisar – viljum við standa úti eða fara í skjól?