fbpx
Föstudagur 22.ágúst 2025
Eyjan

Vændi í Þýskalandi, Gumball kappaksturinn

Egill Helgason
Miðvikudaginn 3. maí 2006 13:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er allt í lagi að hafa nokkur atriði á hreinu í tengslum við vændi og heimsmeistarakeppnina í fótbolta. Þjóðverjar hafa að sumu leyti annað viðhorf til líkamlegra hluta en aðrar þjóðir. Þeir hafa til dæmis alltaf verið mjög spenntir fyrir núdisma og því sem kallast körperkultur.

Allir sem hafa komið í Landmannalaugar um háferðamannatímann hafa séð nakta Þjóðverja flatmaga í laugunum, konur sem eru loðnar undir höndunum, karla sem valsa um með tólin úti í loftið. Er annars búið að banna nekt á hálendinu?

Þýskaland er eina landið í heiminum þar sem ég hef séð nakinn mann í strætó. Hann var í sandölum, að öðru leyti allsber, stóð og las blað með bumbuna út í loftið. Enginn veitti þessu neina eftirtekt. Líklega var hann á leið í enska garðinn í München þar sem allir eru allsberir á sumrin.

Að sumu leyti er þetta pínu ógeðslegt. Kemur dálítið niður á dulúðinni – leyndardómnum – sem sumir vilja hafa í kringum kynlíf. Frænka mín sem var lengi búsett í Þýskalandi sagði mér að ólíklegustu menn færu til vændiskvenna þar í landi. Fyrir þeim væri þetta svona eins og að fara í sund.

Vændi er enda löglegt í Þýskalandi og vændiskonur njóta þar verndar yfirvalda. Þær þurfa að gangast undir læknisskoðun. Það þarf ekki endilega að vera svo vont fyrirkomulag, sérstaklega ef hægt er að koma í veg fyrir mansal og kynlífsþrælkun – óghugnanlegustu fylgifiska vændisins.

En hverju á Eggert Magnússon, formaður KSÍ, að geta breytt í þessu sambandi?Það er mér alveg hulið.

— — —

Þegar ég var lítill var sýnd í Nýja bíói mjög vinsæl kvikmynd með Jack Lemmon og Tony Curtis sem hét The Great Race. Myndin fjallaði um kappakstur yfir þrjár heimsálfur í upphafi síðustu aldar. Ég þykist nokkuð viss um að þetta er ein af þessum sakleysislegu grínmyndum sem eru nákvæmlega ekkert fyndnar lengur – en í minningunni er hún skemmtileg.

Nú velti fyrir mér hvort Gumball 3000 kappaksturinn sé eitthvað í líkingu við þetta, fullur af rómantík, hetjudáðum og glæsimeyjum, ökuþórum sem keyra yfir reginfjöll eða festa bíla sína í miðjum eyðimörkum, eða hvort þetta sé bara eitthvert dæmi fyrir nýríku Nonnana til að geta borist á?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 6 dögum

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn

Segir að ESB-aðild sé engin ógn við sjávarútveginn
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí

Nína Richter skrifar: Miðaldra konur í hörtóga á Balí
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Trump leitar í smiðju höfundar hrunsins

Orðið á götunni: Trump leitar í smiðju höfundar hrunsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi

Svarthöfði skrifar: Öfugmælavísa ritstjórans – niðurlæging stjórnarandstöðunnar tekur engan endi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“

Jón hlakkar til að fá tækifæri til að hitta Long – „Hann þykir samt almennt hress“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“

Inga nýtur sín á Tenerife en er samt í vinnunni – „Ég er ekki ein löggjafinn“
Eyjan
Fyrir 1 viku

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?

ESB-aðild: Rangfærslur og blekkingar fyrrum þingmanns – við hvað eru menn hræddir?
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“

Nína Richter skrifar: Til varnar „mömmuklámi“