fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Grikkland, Mer, Snorri, Fréttablaðið, Löngusker

Egill Helgason
Sunnudaginn 23. apríl 2006 20:21

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ég var í Frakklandi og Grikklandi yfir páskana. Það er afsökunin fyrir því að hafa verið svona slappur að uppfæra vefinn. Í Grikklandi er reyndar páskadagur í dag. Mér fannst leiðinlegt að geta ekki séð páskana á Naxos. Þar var búið að hengja upp páskaljós á ljósastaura – ekki ósvipað jólaljósum hér.

Allir voru í óða önn að undirbúa sig undir hátíðina sem er hin langstærsta þar í landi. Síðskeggjaðir prestarnir virkuðu enn ábúðarmeiri en endranær, enda mikið um að vera í kirkjunum sem eru óteljandi í Grikklandi.

Hitinn var kominn hátt í 25 stig, en sjórinn enn óbærilega kaldur. Á Naxos hitti ég Bergþóru, tónlistarskríbent af Mogganum, sem bloggar frá eyjunni af mikilli stílfimi.

— — —

Svo vorum við í Frakklandi. Í Lille hitti ég gamlan vin minn, mikinn merkismann, Jacques Mer, sem eitt sinn var sendiherra Frakka á Íslandi. Hann hefur skrifað bækur og fjölda greina um Ísland, um stjórnmál, efnahagslíf og kvikmyndir. Mer ritar ennþá fréttabréf um Íslandi sem birtist á netinu.

Það var hann sem stóð fyrir því að Vigdís og François Mitterrand fóru á sínum tíma á búlluna Duushús að hlusta á Sykurmolana. Það var óborganlegt að fylgjast með forsetum þessara tveggja lýðvelda þar sem þeir horfðu á tiþrifin í Björk og Einari Erni. Ég veit ekki hvað þeim var skemmt.

Þegar Mer var sendiherra var Frakkland í tísku á Íslandi. Svo mikið líf skapaðist í kringum þennan eldhuga. Hann var mjög óhefðbundinn embættismaður. Hlustaði tll dæmis á Bubba í botni að loknum skrifstofutíma.

— — —-

Snorri Hjartarsson var ágætt skáld en hann leiddi íslenska ljóðlist inn í öngstræti mikilla leiðinda. Óteljandi skáld fóru að apa hina þungstemmdu og naumu náttúrumyndir eftir Snorra – á endanum gerði það næstum út af við "ljóðið". Mig minnir að Einararnir hafi kallað þetta "mýrissnípukveðskap" á árunum sem þeir sátu á lestrarsal Landsbókasafnsins. Þetta var auðvitað ekki Snorra að kenna, en áhrif hans voru ekki góð.

— — —

Fréttablaðið á fimm ára afmæli. Til hamingju með það. Maður trúði því ekki í upphafi að það mundi lifa árið. Svo eignaðist blaðið mjög öfluga bakhjarla – um tíma var leyndó hverjir þeir voru. Nú er Fréttablaðið helsti auglýsingamiðill landsins, raunar svo mjög að auglýsingarnar kaffæra annað efni í blaðinu dag eftir dag. Það er auðvitað ekki nógu gott – það er að segja ef tilgangurinn er að gefa út blað fyrir lesendur.

Hitt sem þarf að bæta er dreifingin. Meðan hún er svona léleg hættir manni til að álíta að tölurnar um útbreiðslu blaðsins séu tilbúningur. Í hverfið hjá mér berst Fréttablaðið hérumbil aldrei um helgar.

— — —

Í dag frumsýndi ég í þætti mínum myndband sem Framsóknarflokkurinn hefur látið gera um flugvöll á Lönguskerjum. Myndbandið má finna hér. Þetta er athyglisvert innlegg í borgarstjórnarkosningarnar. Framsóknarmenn verða ekki sakaðir um að tala ekki nógu skýrt. Sumir hinna flokkanna mættu kannski taka sér það til fyrirmyndar.

Það er vísað í þá málamiðlun að nú þurfi að setja niður flugvöll annars staðar á höfuðborgarsvæðinu – en er yfirleitt nokkurs staðar pláss fyrir hann?

Nema þá kannski á Lönguskerjum?

— — —

Ég sagði við Kára að börn í Frakklandi fengu rauðvín í pelann sinn. Kári svaraði:

"Þá fer ég og tek pelana af þeim?"

"Ha?" sagði ég.

"Já, og set mjólk í þá!"

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki