fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Eyjan

Að rýna í telauf – Brynjólfsmessa – valdablokkir

Egill Helgason
Sunnudaginn 9. apríl 2006 17:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nú er evran að komast 90 krónur. Í spám greiningardeilda bankanna frá því í lok síðasta árs stóð að krónan myndi varla veikjast fyrr en færi að líða að lokum stórframkvæmda árið 2007, þá var spáð að hún myndi lækka um 20-25 prósent.

Nú er þessi lækkun orðin að veruleika, en hún gerist ári of snemma miðað vð það sem hinir spámannlega vöxnu greiningarmenn sögðu. Eða er kannski réttara að segja að gjaldmiðillinn hafi hrunið eða hrapað? Fer hann bráðum neðar?

Glitnir spáir 20 prósenta hækkun á hlutabréfum. Getum við ekki alveg eins rýnt í telauf – innyfli fugla koma varla til greina vegna flensunnar.

— — —

Jónína Ben var í Silfrinu hjá mér í dag með merkilega greiningu á valdablokkunum í samfélaginu, ítökum og eignarhaldi. Jónína hefur verið að rannsaka þetta í háskólanámi í hagfræði á Bifröst. Margir hafa tilhneigingu til að afskrifa Jónínu vegna tengsla við Baugsmálið. Það er ekki allskostar réttlátt því hún hefur margt og merkilegt fram að færa og hefur viðað að sér mikilli þekkingu.

Ekki er síst ástæða til að gefa gaum spurningum sem hún setur fram um hvernig ofurvald bankanna er að skekkja samfélagsgerðina hér og svo líka um tengsl stjórnmálamanna við valdablokkirnar.

— — —

Þegar ég er í ræktinni er oft kveikt á sjónvarpsstöðvum sem sýna tónlistarmyndbönd. Maður veltir fyrir sér hvort ekki væri einfaldara fyrir sumar söngkonurnar (ltil dæmis Beyonce Knowles) að syngja bara með rassinum?

— — —

Flutningur Brynjólfsmessu eftir Gunnar Þórðarson var mikill tónlistarviðburður. Ég var viðstaddur tónleikana í Grafarvogskirkju. Þetta er ævintýralega skemmtilegt og fallegt tónverk, iðandi músíkalskt, og á vonandi á eftir að hljóma mörgum sinnum. Það er ekki oft að maður hefur heyrt jafn glaðlega messu. Kirkjan hlýtur að vilja halda þessari tónlistarperlu á lofti – og vonandi verður hún hljóðrituð líka.

— — —

Svo ætla ég að benda þrjár merkilegar greinar. Sú fyrsta er eftir Simon Jenkins, birtist í Guardian og fjallar um skelfilegar afleiðingar módernismans í arkítektúr – og þá furðulegu staðreynd að mönnum skuli ekki enn hafa tekist að slíta sig frá þessum hryllingi

Önnur greinin er eftir hinn stórmerkilega þjóðfélagsrýni Jóhannes Björn, höfund bókarinnar Falið vald. Jóhannes birtir annað veifið mjög djúpar pælingar á vef sínum vald.org – í þetta sinn er hann að fjalla um vogunarviðskipti svokölluð og hugsanlegt hrun á fjármálamörkuðum heimsins. Jóhannes telur að nú séum við að verða vitni að ennþá ótraustari sápukúlu en á árunum fyrir 2000.

Sú þriðja er eftir Jón Magnússon, lögmann og tíðan gest í Silfri Egils, birtist á vef hans. Það eru tímabærar vangaveltur um verðlagningu símafyrirtækja. Málið er að símafyrirtæki eru ekki í samkeppni, heldur hafa samráð um að halda uppi verðinu. Þess vegna er ESB að láta til skarar skríða gegn okrinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni

Nína Richter skrifar: Fólkið sem notar internetið í vinnunni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“

Segir Einar og Sigurð Inga þurfa að viðurkenna eigin vanmátt – „Hversu lengi ætlar flokkurinn að sökkva án þess að grípa í neyðarhemilinn?“
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum
Enn eru fornmenn á ferð
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar

Sigmundur Ernir skrifar: Eldhúsdagurinn afhjúpaði harðlínu andstöðunnar
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum

Óttar Guðmundsson skrifar: Ofbeldi í nánum samböndum