fbpx
Mánudagur 02.mars 2026
Eyjan

Af ávöxtunum skulið þér þekkja þá

Egill Helgason
Föstudaginn 30. september 2005 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ávextir hafa leikið stórt hlutverk í stjórnmálaumræðu á Íslandi; það hratt af stað mikilli atburðarás þegar Davíð keypti vínberin í London og furðaði sig á því hvað þau væru ódýr miðað við heima. Þegar Davíð var að alast upp voru ávextir fágætir á Íslandi; þeir fengust ekki fluttir inn vegna innflutningshafta og gjaldeyrisnurls. Þetta voru fábrotnari en ekki endilega verri tímar; slagorð Silla & Valda sem þá höfðu verslanir um allan bæ var "Af ávöxtunum skulið þér þekkja þá".

Atburðarásin í leikritinu Deleríum Búbónis snýst meðal annars um þessi höft á innflutningi – þar er að finna ljóðlínuna:

Þú færð í magann þinn mjóa
melónur og vínber fín.

— — —

Nú þegar er meira frelsi á flestum sviðum streyma inn ávextir sem maður kann varla að nefna. Spurningin er hins vegar hvers vegna svo mikið af því er óætt? Lélegt, skemmt, bragðlaust. Erlendis er mikið fjallað um hvernig súpermarkaðir fletja allt út; auka úrvalið en auka það samt að vissu leyti ekki. Í súpermörkuðum er hægt að fá jarðarber allt árið – árstíðirnar þurrkast að vissu leyti út – en það er eiginlega aldrei hægt að fá jarðarber sem eru fersk og bragðmikil.

— — —

Varan er flutt langvegu – af einhverjum ástæðum er það talið hagkvæmara. Hnattvæðingunni fylgja ofboðslegir flutningar þvers og kruss um heiminn. Oftast veit maður ekki hvaðan ávextirnir koma – veltir því heldur ekki fyrir sér. Nú er nýafstaðin eplauppskera í Norður-Evrópu. Þegar ég kom í búð í Reykjavík áðan voru þar til sölu epli – frá Nýja Sjálandi.

Maður sér ekki auglýst dönsk epli, vínber úr nýrri uppskeru í Frakklandi, skógarber frá Noregi. Þegar komið er inn í súpermarkaðinn virðist úrvalið nóg, en við erum orðin vön banönum sem morkna undireins og maður kemur með þá heim, appelsínum sem eru trénaðar og bragðvondar, eplum sem virðast skínandi og fersk en eru bara sprautuð með vaxi, melónum sem eru annað hvort grjótharðar og óþroskaðar eða eins og grautur að innan.

 

Já. Af ávöxtunum skulið þér þekkja þá.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna

Nína Richter skrifar: Þegar femínistarnir þagna
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu

Þorsteinn Pálsson skrifar: Nei er stefnubreyting til meiri óvissu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna

Orðið á götunni: Líttu þér nær, Sólveig Anna
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum
Landráðamenn
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill

Sverrir Páll Einarsson skrifar: Klárum frumvarp um brottfararstöð eins og þjóðin vill
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu

Orðið á götunni: Guðlaugur Þór ræður mestu um listann í Reykjavík – logar í illdeilum þótt reynt sé að tala um samstöðu
Eyjan
Fyrir 1 viku

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi

Grímur Sæmundsen: Þrátt fyrir eldsumbrot höfum við getað haldið fullum dampi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna

Óttar Guðmundsson skrifar: Losum fráflæðisstífluna
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“

Segir framkomuna í garð Guðmundar Inga skýrt dæmi um óheiðarleika stjórnmálanna – „Lygin festist“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki

Orðið á götunni: Ólíkt hafast þeir að – sumir skilja að tímabundin skipun í embætti er tímabundin, aðrir ekki