fbpx
Sunnudagur 29.júní 2025
Eyjan

Margir titlar – of fáir kaupendur

Egill Helgason
Miðvikudaginn 1. desember 2004 00:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Um daginn fékk ég símtal frá ævareiðum rithöfundi sem sagði stuttu eftir að hann hringdi að hann legði ekki í vana sinn að skella á fólk. Það var þó greinilega það sem hann langaði til að gera – hringja til að skella á.

Maðurinn sagði að ég væri í klíku – en ef ég væri ekki í klíkunni, þá væri greinilegt að ég væri að láta misnota mig. Klíkan var svona frekar óskilgreind – þarna var Halldór Guðmundsson og Silja og JPV og Edda og sjálfsagt einhverjir fleiri. Ég hafði unnið mér það til óhelgi að hampa bók Halldórs um Halldór sem höfundurinn sagði að væri "ofmetin". Hins vegar hefði ég þagað um bókina hans.

Svona er nú taugaveiklunin mikil á jólabókamarkaðnum. Alltof margir titlar – alltof fáir kaupendur. Menn rjúka upp af minnsta tilefni. Þannig blossaði upp nokkuð fjörug en stutt deila milli Þráins Bertelssonar og Ágústs Borgþórs Sverrissonar um bók þess fyrrnefnda, Dauðans óvissi tími. Ágúst sagði að verk Þráins væri í kjaftasögu- og dylgjustíl; Þráinn svaraði með því að telja Ágúst siðlausan og heimskan.

Um daginn fékk ég senda bók sem hefur verið talin líkleg til metsölu, mikinn doðrant. Ég fór að lesa og komst að því að í bókinni sem ég fékk voru óprentaðar arkir, vantaði semsagt parta í söguna. Ég lýsi því ekki hvað ég var glaður þegar ég kom að auðum síðum, fletti yfir með góðri samvisku og tókst að klára bókina á mettíma.

— — —

Menn eru dálítið að velta fyrir sér nýyrði Davíðs Oddssonar "afturhaldskommmatittsflokkur". Þetta er að sönnu langt og mikið orð – býsna innblásin samsetning. Mér sýndist næstum að Davíð kæmi sjálfum sér á óvart með þessu. Gamall kommi hringdi í mig og sagðist hafa verið kallaður mörgum uppnefnum í gegnum tíðina, hann kippti sér ekkert upp við það, en hins vegar ræki sig ekki minni til að hafa heyrt orðið "kommatittur".

Orðið "hommatittur" hefði hins vegar verið algengt á sínum tíma, áður en pólitískir rétthugsuðir hófu að endurskoða tungumálið. Spurning hvort ekki hafi aðeins slegið saman í kolli utanríkisráðherrans?

— — —

Benedikt Jóhannesson og Jón G. Hauksson skiptast á um að skrifa mjög áhugaverða pistla á vefsvæðið heimur.is. Benedikt skrifar grein í gær og fjallar um Silfursþátt um helgina þar sem hann sat ásamt Hjálmari Árnasyni og fleirum. Benedikt rekur stafrétt orðaskipti í þættinum sem enduðu með því að Hjálmar sagðist reiðubúinn að endurskoða stuðninginn við Íraksstríðið. Benedikt veltir fyrir sér þeim orðum Davíðs Oddssonar á Alþingi að Hjálmar hafi sýnt þrek með því að vera í þættinum jafnlengi og hann var, enda hafi þar verið "yfirgengilega vitleysisleg umræða".

Maður nokkur sendi mér tölvupóst og spurði hvað Bensi væri að fara með pistlinum? Er hann að bauna á Davíð, á þáttastjórnandann, eða kannski á sjálfan sig – sem líka sat þarna lengi og sagðist lítt hrifinn af hernaðinum í Írak?

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“

Saka Heiðrúnu Lind um alvarlegar rangfærslur – „Notast áfram við tölur sem hún veit að eru ekki þær réttu“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu

Skotin ganga á víxl á Alþingi – Stjórnarandstaðan móðguð út í Ingu og Kristrúnu
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá

Svarthöfði skrifar: Málæði um ekki neitt meðan sumarið líður hjá
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur

Þorbjörg Sigríður: Ísland eina Schengen landið sem ekki er með móttöku- og brottfararstöðvar fyrir hælisleitendur
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri

Þorbjörg Sigríður: Frumskylda ríkisins að tryggja öryggi fólks – alþjóðlegt samstarf lykillinn að árangri
Eyjan
Fyrir 1 viku

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi

Segist ekki trúa því að stjórnarandstaðan ætli með málþófi að hindra gríðarlega réttarbót fyrir fatlað fólk á Íslandi
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“

Þorgerður las Sigurði pistilinn – „Ég veit ekki hvort þetta er bíræfni eða ósvífni af hálfu formanns Framsóknarflokksins“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi

Orðið á götunni: Framsókn hverfur úr borginni – Sjálfstæðisflokkurinn nær engu flugi