fbpx
Miðvikudagur 02.júlí 2025

Bergsveinn með mikilvæg skilaboð – „Við eyðum mikilli orku í að forðast dauðann“

Ritstjórn Bleikt
Miðvikudaginn 29. janúar 2020 20:14

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Fyrirlesarinn Bergsveinn Ólafsson segir að fráfall körfuboltagoðsagnarinnar Kobe Bryant hafi látið hann hugsa um dauðann. „Hvort sem við hugsum um hann eða ekki þá er hann alltaf að birtast okkur í fréttum, sögum um líf annarra, áhyggjum varðandi okkar heilsu, athyglinni okkar í umferðinni eða þegar við eigum afmæli,“ segir Bergsveinn í pistli sem birtist á Vísi. „Við eyðum mikilli orku í að forðast dauðann og hann umlykur allt sem við gerum, ómeðvitað eða meðvitað.“

Bergsveinn segir hugsanir um dauðann vera krefjandi fyrir marga. „Dauðinn er hins vegar óumflýjanlegur hluti af tilverunni. Hann er það eina sem er víst að gerist í þessum heimi. Versta er eflaust óvissan sem fylgir honum. Við getum ekki vitað hvenær eða hvernig dauðinn mun banka á dyrnar hjá okkur og okkar nánustu,“ segir hann og kemur síðan með mikilvæg skilaboð. „Við getum hins vegar notað dauðann til að hvetja okkur að gera það sem skiptir okkur máli í lífinu.“

„Að nýta hvert augnablik til hins ýtrasta. Að efla tengslin við vini, maka og foreldra. Að verja minni tíma í óþarfa áhyggjur. Að hætta að bíða eftir að hafa tíma í hlutina og gera þá. Að segja óttanum að halda kjafti og ganga í augun á honum. Að vera trúr sjálfum sér. Að umkringja sig fólki sem lætur sér líða vel. Að segja sannleikann. Að taka lífinu ekki of alvarlega. Að lifa hvern einasta dag eins og hann sé sá síðasti.“

„Ég las einhvers staðar fyrir mörgum árum að við eigum tvö líf og það seinna byrjar þegar við áttum okkur á að við eigum bara eitt,“ segir Bergsveinn og bendir á að lífið sé of stutt til að eyða því í óþarfa kjaftæði. „Við getum ekki stjórnað hvenær dauðinn mun banka á dyrnar en við getum stjórnað hvort við höfum dyrnar lokaðar eða opnar þegar við erum á lífi. Dauðinn getur verið hvetjandi eða letjandi, þitt er valið,“ segir Bergsveinn og endar pistilinnn á spurningu.

„Hverju myndir þú sjá eftir í lífinu?“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 8 klukkutímum

Messi sagður vera á förum

Messi sagður vera á förum
Pressan
Fyrir 8 klukkutímum

Miðinn í ruslinu breytti lífi hennar

Miðinn í ruslinu breytti lífi hennar
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Allar heilar fyrir stóru stundina

Allar heilar fyrir stóru stundina
433Sport
Fyrir 10 klukkutímum

Þorsteinn kom inn á viðbrögð andstæðinga Íslands – „Þetta er tálsmáti sem þær nota“

Þorsteinn kom inn á viðbrögð andstæðinga Íslands – „Þetta er tálsmáti sem þær nota“
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Arsenal staðfestir kaupin á Kepa frá Chelsea

Arsenal staðfestir kaupin á Kepa frá Chelsea
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í sinni eigu til leigu

Grindavíkurbær auglýsir íbúðir í sinni eigu til leigu
433Sport
Fyrir 13 klukkutímum

Hér mæta Stelpurnar okkar Finnum á morgun – Yfir þúsund Íslendingar

Hér mæta Stelpurnar okkar Finnum á morgun – Yfir þúsund Íslendingar
Pressan
Fyrir 13 klukkutímum

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu

Vopnahléi Musk og Trump er heldur betur lokið og auðkýfingurinn hótar öllu illu

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.