Bandarísku ferðabloggararnir og parið Kelly Castille, 33 ára, og Kody Workman, 32 ára, hafa verið harðlega gagnrýnd og sögð vera lífshættulega athyglissjúk. Þau halda úti Instagram-síðunni @positravelty og deildu mynd af sér fyrir ofan Humantay Lagoon í Perú. Þau hvöttu rúmlega 160 þúsund fylgjendur sína að „taka áhættu“ og „brjótast í gegnum neikvæðni“ í lífi sínu.
https://www.instagram.com/p/B1tnuT9BUOz/
„Heimurinn er að bíða eftir þér! Á bak við alla þá sem vilja að þú lifir hljóðlátu og rólegu lífi er opinn strigi. Við hvetjum þig til að taka áhættu, að brjótast í gegnum neikvæðni og kúgun sjálfsfullnægingar og mála myndina af þeirri manneskju sem þú vilt verða. Aldrei leyfa þeim sem eru of hræddir að lifa sínu lífi að brjóta þig niður fyrir að lifa lífinu. Það er munur á því að hætta lífi þínu og að taka áhættu að eiga líf. Við vitum hvor megin við viljum vera, veist þú það?“ Skrifuðu þau með myndinni.
https://www.instagram.com/p/B2CN0LVBoEU/
Myndin vakti vægast sagt hörð viðbrögð. Hér eru nokkur ummæli við myndina.
„Hugrekki? Hugrekki er að fara og berjast í stríði. Ekki þetta. Hvað ef hún hefði runnið til og dáið? Myndir þú kalla hana áfram hugrakka? Hugsaðu um hvað þið eruð að reyna að hafa áhrif á hérna,“ skrifaði einn netverji.
„Þetta snýst um að fá athygli. Þetta gefur okkur engar upplýsingar um landið sem þau eru að ferðast um. Alvöru ferðabloggari/Instagram-síða er um staðinn, ekki manneskjuna. Verið hreinskilin,“ skrifaði annar.
Einn bætti við: „Þetta er svo heimskulegt hvað þið eruð að gera til að fá athygli. Þetta er heimska aldamótakynslóðarinnar.“
„Þið þurfið að tala við sálfræðing, þið eigið við vandamál að stríða. Fólk deyr við að taka heimskulegar sjálfsmyndir.“
„Að auglýsa heimsku með því að pakka henni inn í fallegar umbúðir,“ skrifaði annar.
https://www.instagram.com/p/Bza8g8NhGLx/
Fjöldi fólks kom parinu til varnar. „Hverjum er ekki sama að þau vilja taka svona myndir. Þau eru ekki börn, þau geta tekið sínar eigin ákvarðanir,“ skrifaði einn fylgjandi parsins.
„Ég myndi ekki vilja gera þetta sjálf en það er engin ástæða til að gagnrýna þau,“ skrifaði ein kona þeim til varnar.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem parið hefur verið gagnrýnt fyrir að taka áhættusama mynd. Í apríl var parið kallað „heimskt“ fyrir að deila þessari mynd hér að neðan.
https://www.instagram.com/p/BvwamQAF0Lm/
Parið svaraði þeirri gagnrýni og sögðu að þau „fóru mjög varlega“ þegar þau voru að taka myndina.
„Það var ótrúlega gaman að taka þessa mynd. Kody var með mjög gott tak á mér. Við treystum hvort öðru,“ sagði Kelly.
Í síðasta mánuði var áhrifavaldur gagnrýndur fyrir að birta myndir af slysavettvangi.