fbpx
Sunnudagur 06.júlí 2025

Gífurlegur aldursmunur á frægum hjónum – Allt að 35 ár en ástin spyr ekki um aldur

Ritstjórn Bleikt
Sunnudaginn 8. desember 2019 22:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástin er eins og sinueldur og oft verður mikið bál af litlum neista. Ástin spyr ekki um stað og stöðu – ekki heldur um aldur. Fólk nær saman óháð því hver fæðingardagur þess er og lætur ekki á sig fá þótt annað fólk slúðri um aldursmuninn. Hér eru nokkur pör sem sanna að aldur er bara tala á blaði og stjórnar ekki málefnum hjartans.

George og Amal Clooney: 17 ár

Það kom mörgum í opna skjöldu þegar einn eftirsóttasti piparsveinn heims, leikarinn George Clooney, tilkynnti trúlofun sína og mannréttindalögfræðingsins Amal, sem þá var Alamuddin, árið 2014. Hann var þá 52 ára en hún 35 ára. Þau gengu í það heilaga stuttu síðar, um ári eftir að þau kynntust, og eignuðust tvíburana Ellu og Alexander í júní árið 2017.

Ellen DeGeneres og Portia de Rossi: 15 ár

Sjónvarpsstjörnurnar tvær byrjuðu að slá sér upp árið 2004 og fóru að búa saman ári síðar. Þær giftu sig síðan árið 2008 og hafa verið saman allar götur síðan, en Ellen er fimmtán árum eldri en Portia.

Jason Statham og Rosie-Huntington-Whiteley: 20 ár

Leikarinn Jason Statham, 52 ára, og Rosie, 32 ára, byrjuðu saman árið 2010 og trúlofuðu sig í janúar árið 2016. Stuttu síðar tilkynntu þau að þau ættu von á sínu fyrsta barni og fæddist þeim sonurinn Jack Oscar Statham í júní árið 2017.

Michael Douglas og Catherine Zeta-Jones: 25 ár

Þótt 25 ár aðskilji leikkonuna og leikarann þá vill svo heppilega til að þau eiga sama afmælisdag – þann 25. september. Parið kynntist á kvikmyndahátíð árið 1996. Þremur árum síðar fór Michael á skeljarnar, aðeins mánuði eftir að skötuhjúin staðfestu að Catherine væri ólétt. Leikkonan fæddi soninn Dylan í ágúst árið 1999 og leikarahjónin gengu upp að altarinu í nóvember árið 2000. Þau skildu að borði og sæng um skeið árið 2013 en fundu fljótt aftur ástarneistann sem sameinaði þau í upphafi.

Sarah Paulson og Holland Taylor: 31 ár

Sögusagnir um að leikkonan Sarah Paulson, þá 41 árs, væri að slá sér upp með goðsögninni Holland Taylor, þá 72 ára, kvisuðust árið 2015. Sarah staðfesti þennan orðróm í viðtali við New York Times árið 2016. Þær eru enn saman þrátt fyrir alls konar ljótt umtal um aldursmuninn. Sönn ást á ferð.

Harrison Ford og Calista Flockhart: 22 ár

Leikarinn og leikkonan hittust fyrst á Golden Globe-verðlaunahátíðinni árið 2002. Þá var Harrison sextugur og Calista 38 ára. Ástin kviknaði og þau slógu sér upp í sjö og hálft ár áður en Harrison bað Calistu árið 2009. Þau giftu sig síðar sama ár og hafa ættleitt einn son saman, þessir kæru Íslandsvinir.

Alec og Hilaria Baldwin: 26 ár

Skötuhjúin kynntust í febrúar árið 2011 og færðist fljótt mikil alvara í sambandið. Á fyrstu fimm mánuðum sambandsins fluttu byrjuðu þau að búa saman, byrjuðu að íhuga brúðkaup og barneignir og giftu sig loks. Þau eiga fjögur börn saman, en Hilaria hefur talað mjög opinskátt um fósturmissi á samfélagsmiðlum.

David Foster og Katharine McPhee: 35 ár

Turtildúfurnar hittust fyrst árið 2006 þegar Katharine tók þátt í seríu fimm af American Idol. Rúmum áratug síðar fóru sögur á kreik um að þau væru búin að fella hugi saman, sú reyndist svo raunin. Þau trúlofuðu sig síðan árið 2018. David er sjötugur og Katharine er 35 ára.

Emma Heming og Bruce Willis: 23 ár

Emma og Bruce giftu sig árið 2009 og eiga tvær dætur saman.

Alexis Roderick og Billy Joel: 33 ár

Tónlistarmaðurinn Billy Joel kvæntist í fjórða sinn árið 2015 og var Alexis sú heppna. Hjónin eignuðust dótturina Dellu Rose árið 2015 og dótturina Remy Anne tveimur árum síðar.

Rod Stewart og Penny Lancaster: 26 ár

Goðsögnin Rod Stewart kvæntist fyrirsætunni Penny Lancaster árið 2007. Penny er þriðja eiginkona Rods, sem er 74 ára. Penny er hins vegar 48 ára. Penny og Rod eiga tvo syni saman, Alastair og Aiden. Rod á sex önnur börn úr fyrri hjónaböndum.

Elliot Spencer og Stephen Fry: 30 ár

Sjónvarpsstjarnan Stephen er rúmlega sextugur en ljósmyndarinn Elliot er 32 ára. Skötuhjúin kynntust árið 2014 og smullu saman. Ári síðar giftu þeir sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 2 klukkutímum

Myndband: Gæsahúð í Bern þegar 2 þúsund Íslendingar sungu „Ég er kominn heim“

Myndband: Gæsahúð í Bern þegar 2 þúsund Íslendingar sungu „Ég er kominn heim“
Pressan
Fyrir 3 klukkutímum

Líf eftir dauðann – Þegar þú deyrð veistu að þú ert dáinn

Líf eftir dauðann – Þegar þú deyrð veistu að þú ert dáinn
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

United íhugar að skipta við Juventus

United íhugar að skipta við Juventus
433Sport
Fyrir 4 klukkutímum

Pabbi Karólínu stoltur af dóttur sinni – „Þær eru búnar að vera svo lengi að undirbúa sig“

Pabbi Karólínu stoltur af dóttur sinni – „Þær eru búnar að vera svo lengi að undirbúa sig“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Dóri Gylfa: „Við verðum eins og krækiber í helvíti en krækiber eru góð“

Dóri Gylfa: „Við verðum eins og krækiber í helvíti en krækiber eru góð“
433Sport
Fyrir 5 klukkutímum

Segir það grunsamlegt ef sinn maður vinnur ekki Ballon d’OR

Segir það grunsamlegt ef sinn maður vinnur ekki Ballon d’OR
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Calvert-Lewin á Old Trafford?

Calvert-Lewin á Old Trafford?
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Jasmina er búin að fá nóg – „Virðist orðið sjálfsagt að benda á innflytjendur og flóttafólk þegar eitthvað fer úrskeiðis“

Jasmina er búin að fá nóg – „Virðist orðið sjálfsagt að benda á innflytjendur og flóttafólk þegar eitthvað fer úrskeiðis“

Tarot Spil

Veldu þér spil og sjáðu spádóm þinn.