Tilli Buchanan hefur verið ákærð fyrir kynferðisglæp eftir að stjúpbörn hennar sáu hana bera að ofan. Ef hún verður dæmd sek verður hún sett á lista yfir kynferðisglæpamenn, eins og barnanauðgara. Hún býr í Utah-fylki í Bandaríkjunum.
Tilli, 28 ára, var að vinna í bílskúrnum heima hjá sér ásamt eiginmanni sínum síðla árs 2017, eða snemma árs 2018. Þau fóru bæði úr að ofan til að koma í veg fyrir að ryk færi í fötin. CBS greinir frá.
Stjúpbörn Tilli, níu og þrettán ára, eiga þá að hafa séð hana bera að ofan. Þegar móðir barnanna heyrði af atvikinu lét hún barnayfirvöld vita því henni þótti þetta „áhyggjuefni.“
Tilli var ákærð í febrúar fyrir þrjú smávægileg afbrot og lostafullt athæfi gegn barni. Eiginmaður hennar var ekki kærður. Ef hún verður fundin sek þá gæti hún þurft að vera á skrá yfir kynferðisafbrotamenn í tíu ár.
„Ef hún tapar, þá verður hún á lista með barnanauðgurum og öðrum glæpamönnum,“ segir lögfræðingur hennar, Randy Richards, við Salt Lake Tribune.
Tilli Buchanan’s attorney argued her husband was also without a shirt, yet he was not charged with any crime.https://t.co/r0aEqeicon
— The Salt Lake Tribune (@sltrib) November 20, 2019
Tilli hefur talað um tvískinnung málsins, að hún hafi aðeins verið kærð en ekki maður hennar.
„Þetta var í einrúmi á mínu eigin heimili. Eiginmaður minn var við hliðina á mér, að gera nákvæmlega sama hlutinn, og hann er ekki kærður,“ segir hún.
Saksóknarar halda því fram að Tilli hafi verið undir áhrifum áfengis þegar hún fór úr bolnum og hafi sagt að hún færi ekki í hann aftur nema eiginmaður hennar beraði sig fyrir henni.
Dóms er að vænta eftir tvo mánuði.