fbpx
Miðvikudagur 05.nóvember 2025
Pressan

Flutti frá Bandaríkjunum og myrti dóttur sína síðan – Sagði hana hafa birt „ámælisverð“ myndbönd á TikTok

Pressan
Fimmtudaginn 6. febrúar 2025 04:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Maður, sem flutti nýlega með fjölskyldu sinni frá Bandaríkjunum til Pakistan, hefur játað að hafa skotið unglingsdóttur sína til bana. Ástæðan var að hans sögn að honum líkaði ekki við það efni sem hún birti á samfélagsmiðlinum TikTok.

The Independent segir að maðurinn hafi skotið stúlkuna til bana á götu úti í borginni Quetta á þriðjudag í síðustu viku. Maðurinn, Anwar ul-Haq, sagði í fyrstu að óþekktir byssumenn hefðu skotið 15 ára dóttur hans en játaði síðan að hafa verið sjálfur að verki.

Babar Baloch, talsmaður lögreglunnar, sagði Reuters að rannsóknin hafi leitt í ljós að fjölskyldan hafi verið ósátt við hvernig stúlkan klæddist, lífsstíl hennar og hverja hún umgekkst. Ekki sé hægt að útiloka að morðið hafi verið framið til að „vernda orðspor“ fjölskyldunnar.

Fjölskyldan flutti nýlega til Balochistan-héraðsins í Pakistan. Múslimar eru í miklum meirihluta í Pakistan og er þjóðin íhaldssöm þegar kemur að samfélagslegum hefðum og venjum. Fjölskyldan hafði búið í Bandaríkjunum síðustu 25 árin.

Anwar ul-Haq er með bandarískan ríkisborgararétt. Lögreglan segir að hann hafi sagt að dóttir hans hafi byrjað að birta „ámælisvert“ efni á TikTok þegar fjölskyldan bjó í Bandaríkjunum. Hún hafi haldið áfram að birta myndbönd á samfélagsmiðlinum eftir að fjölskyldan flutti til Pakistan.

Mágur hans er einnig í haldi lögreglunnar, grunaður um aðild að morðinu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Áhrifavaldur á Youtube ákærður fyrir dreifa barnaníðsefni

Áhrifavaldur á Youtube ákærður fyrir dreifa barnaníðsefni
Pressan
Fyrir 2 dögum

Einstakt flöskuskeyti fannst í Ástralíu – Afkomendurnir agndofa

Einstakt flöskuskeyti fannst í Ástralíu – Afkomendurnir agndofa
Pressan
Fyrir 3 dögum

Konur græða meira en karlmenn á jafn mikilli hreyfingu

Konur græða meira en karlmenn á jafn mikilli hreyfingu
Pressan
Fyrir 4 dögum

Sakamál: Stúlkan sem hvarf á hrekkjavökunni

Sakamál: Stúlkan sem hvarf á hrekkjavökunni
Pressan
Fyrir 5 dögum

Gabba og lokka börn til að fremja morð

Gabba og lokka börn til að fremja morð
Pressan
Fyrir 5 dögum

Kona ákærð fyrir svæsin leigusvik á Tenerife – Á fangelsi yfir höfði sér

Kona ákærð fyrir svæsin leigusvik á Tenerife – Á fangelsi yfir höfði sér