fbpx
Föstudagur 13.mars 2026
Fréttir

Salka Sól sendir borgarstjóra væna pillu – „Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!“

Erla Dóra Magnúsdóttir
Miðvikudaginn 20. nóvember 2024 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tónlistarkonan Salka Sól Eyfeld er komin með nóg af aðgerðarleysi Reykjavíkurborgar í kjaraviðræðum við kennara. Hún segir foreldra krefjast þess að tafarlaust verið gengið til samninga svo nemendur leik- og grunnskóla geti snúið aftur í skólann eftir 3 vikna fjarveru.

Salka birtir opið bréf á Facebook, sem hún las upp fyrir fund borgarstjórnar í gær, þar sem hún bendir á að verkfallið hafi haft djúpstæð áhrif á þau börn sem aðgerðirnar ná til, sem og fjölskyldur þeirra.

„Börnin okkar fara á mis við þann félagsþroska og menntun sem leikskólar veita þeim. Þá verðum við foreldrar fyrir miklu álagi, andlega, félagslega og fjárhagslega.

Tapið sem börnin okkar verða fyrir af því að missa jafn mikinn tíma úr leikskólatíð sinni undirstrikar mikilvægi starfsins sem kennarar vinna á hverjum degi í þágu barnanna.

Við finnum sannarlega fyrir því núna, meira en nokkru sinni fyrr, að kennarar eru ómissandi þáttur í lífi okkar allra.“

Salka segir að eðlilega séu skiptar skoðanir meðal foreldra um útfærslu verkfallsins. En þeir sem hafi stigið fram í umræðunni og sagt að aðgerðirnar séu bókstaflega ekki að virka, séu klárlega ekki foreldrar barna sem aðgerðirnar ná til. Þessir foreldrar séu að missa úr vinnu og börn þeirra sakna rútínunnar.

„Það eru eðlilega skiptar skoðanir meðal foreldra um útfærslu verkfallsins. En fólk sem segir þessar aðgerðir ekki bíta nóg er greinilega ekki í okkar stöðu. Þær bíta heldur betur, fólk er að missa vinnuna sína, taka launalaust frí sem kemur á endanum niður á fjölskyldunni, klára sumarfrís dagana sína sem setur þau í erfiða stöðu á næsta ári, mörg okkar finna fyrir miklum kvíða, börnin okkar sakna vina sinna og kennara og hafa takmarkaðan skilning á því afhverju þau fá ekki að mæta í leiksskólann sinn.

Reykjavíkurborg ætti að sjá hag sinn í því að binda enda á þetta verkfall áður en Kennarasamband Ísland finnur sig knúið til að ganga lengra og boða til verkfalls í fleiri leikskólum. Ég vona svo innilega að fleiri börn og foreldrar þeirra lendi ekki í sömu stöðu og við.“

Salka beinir orðum sínum til Einars Þorsteinssonar, borgarstjóra, sem fyrir hálfum mánuði  hafi vikið sér undan ábyrgð með því að segjast ekki sitja við samningsborðið í þessum kjaraviðræðum. Þetta sé rangt hjá Einari. Undir aðgerðirnar falla nefnilega börn í Reykjavík sem eru enn á biðlista. Hún spyr Einar hvað hann myndi gera í hennar stöðu.

„Það eru 14 dagar síðan við mættum hingað síðast og þá sagðist þú, í samtali við mbl, ekki sitja við þetta samningsborð.
Þú situr bara víst við þetta samningsborð Einar!

Þetta eru biðlista börnin, biðlista börnin sem fá enn einu sinni að finna fyrir því, þetta eru sömu börn og þeirra foreldrar sem eru enn og aftur komin í biðstöðu og það í boði Reykjavíkurborgar. Þetta þarf ekki að vera svona. Þetta getur verið tíminn sem að þú snýrð við blaðinu hjá Reykjavíkurborg, jafnvel lykillinn af breytingum í borginni eins og þú sjálfur hefur komist að orði. Þetta getur verið tíminn þar sem að borgarstjórn hættir loksins að fría sig af ábyrgð á ástandi leikskólamála og fjárfestir í kennurum.

Ég spyr þig líka Einar frá móður til föður
Hvað myndir þú gera í okkar sporum?
Þetta er í ykkar höndum. Það er hægt að enda þetta verkfall hér og nú.
Semjið við kennara strax“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 17 klukkutímum

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn

Hætti í vinnunni vegna vanlíðunar og skertra kjara en fékk enga miskunn
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Gómuðu maurasmyglara á flugvelli – Meira en 2 þúsund skorkvikindi í tilraunaglösum

Gómuðu maurasmyglara á flugvelli – Meira en 2 þúsund skorkvikindi í tilraunaglösum
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Harmleikur: Fjölskylda ungrar konu sem lést eftir handtöku lögreglu stefndi ríkinu

Harmleikur: Fjölskylda ungrar konu sem lést eftir handtöku lögreglu stefndi ríkinu
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra

Hagfræðingur segir álagningu íslensku olíufélaganna í hæstu hæðum – Ætti að vera 20 krónum lægra
Fréttir
Í gær

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum

Leigjendur höfðu betur í deilu sem sprottin var af þvagblettum