fbpx
Þriðjudagur 16.desember 2025
Fréttir

Kröfðu þekktan fjárfesti um milljónir vegna þrifa á bíl

Ágúst Borgþór Sverrisson
Þriðjudaginn 1. október 2024 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þann 30. september var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness dómur í sérstæðu innheimtumáli. Bílaumboðið BL ehf. stefndi þá Gesti Breiðfjörð Gestsyni, framkvæmdastjóra Sparnaðar og fjárfesti, vegna þrifa og viðgerða á bíl af gerðinni Land Rover Discovery, eftir að pallaolía sullaðist inni í bílnum.

Forsaga málsins er sú að í mars árið 2020 kom upp bilun í Land Rover Discovery bíl Gests sem hann hafði keypt af BL. Hann fór með bílinn í viðgerð hjá umboðinu og fékk samskonar bíl til afnota á meðan verkinu stóð. Nokkru síðar varð þáverandi eiginkona Gests  fyrir því óhappi að bíll ók í veg fyrir hana á þjóðveginum nálægt vegamótum við Akrafjallsveg. Þurfti hún að nauðhemla til að forðast árekstur. Í farangursrými voru pallaolíudósir og við nauðhemlunina fóru lokin af þeim og olían helltist niður og olli töluverðu tjóni á innra byrði bílsins.

Tryggingafélagið sagði nei

Í dómnum kemur fram að þegar Gestur tilkynnti um óhappið til BL var honum tjáð að trygging bílsins bætti tjónið. Síðar kom á daginn að tryggingafélagið neitaði tjónaskyldu þar sem tryggingin næði ekki til farmflutninga. Engu breyttu þó að um umferðaróhapp væri að ræða, ekki nema að eiginkona Gests gæti tilgreint aðilan sem ók í veg fyrir hana.

Í mars árið 2022, eða um tveimur árum eftir atvikið, sendi BL reikning á Gest fyrir þrifunum og viðgerðunum upp á rúmlega 3,8 milljónir króna. Reikningnum var fylgt eftir með innheimtuviðvörun í apríl sama ár. Hann neitaði að greiða, meðal annars á þeim forsendum að hann hafði ekki fengið neinar upplýsingar um að slíkur reikningur væri yfirvofandi.

Við meðferð málsins fyrir dómi var kallaður til dómkvaddur matsmaður sem mat vinnuna við þrif og viðgerðir upp á rúmlega 2,6 milljónir króna og var það krafan sem BL gerði á viðskiptavin sinn fyrir dómi.

Það var mat dómara að krafan hefði komið of seint fram og Gestur væri því sýknaður af öllum kröfum BL sem auk þess þarf að greiða Gesti málskostnað upp á 1,5 milljónir króna.

Dóminn má lesa hér.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin

Harpa hvetur fólk til að sleppa hamborgarhryggnum um jólin
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður

Morðið á Rob Reiner og eiginkonu hans – „Fjölskyldumeðlimur“ yfirheyrður
Fréttir
Í gær

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“

Þegar lífið fer á bið á „bestu árum ævinnar“
Fréttir
Í gær

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“

„Berklar eyddu vonum fólks, eyðilögðu tilhugalíf og ungar fjölskyldur syrgðu“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sanna safnar frjálsum framlögum inn á eigin reikning – „Eðlilegast væri að mínum dómi að safna framlögum á sérstakan reikning“

Sanna safnar frjálsum framlögum inn á eigin reikning – „Eðlilegast væri að mínum dómi að safna framlögum á sérstakan reikning“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Faðir fékk áfall þegar TR krafði hann um meðlagsgreiðslur þrátt fyrir jafna umgengni og staðfest samkomulag við barnsmóður

Faðir fékk áfall þegar TR krafði hann um meðlagsgreiðslur þrátt fyrir jafna umgengni og staðfest samkomulag við barnsmóður
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Stórtækir þjófar létu greipar sópa á Hornafirði

Stórtækir þjófar létu greipar sópa á Hornafirði
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir ábendingahnapp hjá Borgarholtsskóla notaðan til að koma á framfæri nafnlausu níði um kennara

Segir ábendingahnapp hjá Borgarholtsskóla notaðan til að koma á framfæri nafnlausu níði um kennara