fbpx
Miðvikudagur 14.maí 2025
Fréttir

Kristrún er að keyra sig í þrot við að læra að hjúkra öðrum – „Við erum föst í vítahring“

Ragna Gestsdóttir
Fimmtudaginn 14. mars 2024 15:00

Kristrún Vala Ólafsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Vekjaraklukkan hringir og ég þarf að rífa mig á fætur, sem væri allt í lagi, en ég veit að manneklan er svo mikil á spítalanum að við nemarnir erum settir á sjúklinga sem við eigum svo að bera ábyrgð á. Það má reyndar ekki – en hey, það er bara svo næs að láta okkur sjá um þetta fyrst við erum mætt á annað borð. Það er fátt betra en frír starfskraftur, nema kannski fyrir fría starfskraftinn sjálfan. Á meðan spítalinn sparar, lærum við minna og keyrum okkur út,“ 

segir Kristrún Vala Ólafsdóttir nemi í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands í pistli á Vísi. 

„Klukkan er 7:10 á fimmtudagsmorgni. Það er mars, ég er langt komin með verknámið og önnin er alveg að klárast. Það eru bara nokkrar vikur eftir.“

Kristrún Vala bendir á þá augljósu staðreynd að háskólanám er full vinna. Segir hún að raunin sé þó sú að vinnan verður oft meiri en það sem samsvarar „fullri vinnu“. 

„Sá tími sem ekki fer í fyrirlestra á að fara í lestur, klínískt nám eða verkefnavinnu. Það er gott og blessað þegar góður stuðningur við námsmenn er til staðar, til dæmis í formi námslánakerfis sem styður raunverulega við stúdenta. Svo er þó ekki raunin hér á Íslandi, því miður. Námslánakerfið hefur meira að segja reynst svo stuðningslítið að í kringum 70% stúdenta vinna samhliða námi. Þá er hlutastarf komið ofan á fulla starfið sem stúdentar eru nú þegar að vinna í náminu sjálfu. Það er margt sem gæti útskýrt hvers vegna svo fá nýta þetta kerfi; lánin duga tæplega fyrir leigu og mat, hvað þá ef stúdentar hafa dirfst til að halda uppi markaðinum með afleysingum yfir sumartímann og fá því skert námslán vegna lágs frítekjumarks. Það er blóðugt.“

Kristrún Vala segir að í mörgum námsgreinum á Heilbrigðisvísindasviði sé þetta aukna álag ólaunað þrátt fyrir að vera bráðnauðsynlegt fyrir heilbrigðisstofnanir. 

„En við erum að keyra okkur út. Á meðan við fáum ekki launað verknám þurfum við flest öll að vinna líka sem skilar sér í rúmlega 16 tíma vinnudögum á spítalanum, þreytu, vanlíðan og streitu og í ofanálag er námið sjálft sem við þurfum að sinna. Sem á endanum skilar sér í kulnun og heilbrigðiskerfið missir hvern starfskraftinn á eftir öðrum sem skilar sér í enn meiri manneklu sem leiðir af sér enn meira álag og koll af kolli. Við erum föst í vítahring.“

Kristrún Vala segir að það sé vel hægt að laga þetta ástand en það þurfi vinnu og fjármagn til. 

„Við erum í lykilstöðu til þess að hlúa betur að nemum í heilbrigðisgreinum, en allt of mörg dæmi eru um það að nýútskrifað fólk komi í kulnun út á vinnumarkaðinn. Of há prósenta hjúkrunarfræðinga hætta að vinna við hjúkrun fimm árum eftir útskrift. Það er staðreynd að nemar í heilbrigðisgeiranum halda heilbrigðiskerfinu uppi. Við getum ekki borið alla þá ábyrgð sem á okkur er lögð, ekki ólaunað.“

Kristrún Vala sem er í 1. sæti á lista Röskvu á Heilbrigðisvísindasviði í komandi kosningum til Stúdentaráðs Háskóla Íslands bendir á að Röskva þess fyrir stúdenta í heilbrigðisgreinum og sjúklinga að gerðar verði markvissar breytingar á núverandi fyrirkomulagi. Heilbrigðiskerfið er undir og það varðar okkur öll.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“

Edda minnist Lalla Johns – „Lalli var alltaf blíðan uppmáluð, brosandi gleðigjafi og góður við allt og alla“
Fréttir
Í gær

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“

Uggandi yfir uppsögnum: „Þjóðminjasafn án fornleifafræðinga“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn

Kom fyrir myndavélum á klósetti Airbnb íbúðar sinnar – Vildi bera getnaðarlimi gestanna saman við sinn
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti

Sólveig Anna lætur „megins-straums femínista“ heyra það – Vinsælt áhugamál kvenna sem hafi náð jafnrétti