fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Úkraínumenn hæfðu mikilvæg skotmörk í Rússlandi

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 13. mars 2024 04:30

Mynd frá árás Úkraínu á eldsneytisbirgðastöð í Belgorod í Rússlandi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þrátt fyrir að Úkraínumenn skorti vopn og skotfæri og Rússar láti skotum rigna yfir úkraínska hermenn, þá hefur þeim tekist að hæfa mikilvæg skotmörk í Rússlandi.

Þetta kemur fram í daglegri umfjöllun breska varnarmálaráðuneytisins um gang stríðsins í Úkraínu.

Segir ráðuneytið að Úkraínumenn hafi gert drónaárás á viðgerðarstöð í Taganrog í Rostov-héraðinu um síðustu helgi. Í stöðinni var viðhaldi og viðgerðum á A-50 flugvélum flughersins sinnt en að mati Bretanna hafði stöðinni einnig „breiðari taktíska þýðingu“ fyrir Moskvu.

„Þessi árás sýnir að Úkraínumenn geta enn hæft mikilvæg skotmörk í Rússlandi, þrátt fyrir að slík skotmörk séu talin vera varin. Skiptir þá engu hvort það er í lofti eða á landi,“ segir í umfjöllun Bretanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 22 klukkutímum

Eineltið fylgdi Ólafi inn í fullorðinsárin – „Skildi ég aldrei af hverju ég var skotmark“

Eineltið fylgdi Ólafi inn í fullorðinsárin – „Skildi ég aldrei af hverju ég var skotmark“
Fréttir
Fyrir 23 klukkutímum

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“

Sá grunsamlegan mann með fisk og tilkynnti til lögreglu – „Ógeð þetta lið er sem stundar þetta“
Fréttir
Í gær

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“

Róbert vill breyta Reykjavík: „Já, af hverju ekki?“ í staðinn fyrir „má þetta?“
Fréttir
Í gær

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið

Donald Trump við fréttakonu 60 Mínútna: „Þú ert til skammar“ – Sjáðu myndbandið