fbpx
Fimmtudagur 15.maí 2025
Fréttir

Samninganefnd VR samþykkir atkvæðagreiðslu um verkfall

Einar Þór Sigurðsson
Miðvikudaginn 6. mars 2024 10:11

Um er að ræða starfsfólk Icelandair sem sinnir meðal annars innritun, töskumóttöku, brottförum og þjónustu vegna týnds farangurs.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samninganefnd VR samþykkti á fundi sínum í gærkvöldi að efna til atkvæðagreiðslu um verkföll meðal félagsfólks VR sem starfar í farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli.

Frá þessu er er greint á vef VR en um er að ræða starfsfólk Icelandair sem sinnir meðal annars innritun, töskumóttöku, brottförum og þjónustu vegna týnds farangurs fyrir Icelandair og fleiri flugfélög. Í Starfsfólkið starfar eftir sérkjarasamningi Icelandair sem tekur breytingum samhliða aðalkjarasamningi VR og SA og er því undir í yfirstandandi kjaraviðræðum.

„VR, fyrir hönd starfsfólksins, hefur um langa hríð reynt að knýja á um breytingar á kjörum þessa hóps, en einnig á fyrirkomulagi vinnunnar sem sker sig úr íslensku kjarasamningsumhverfi. Um helmingur þeirra ríflega 150 sem starfa við farþegaafgreiðslu Icelandair er gert að lækka starfshlutfall sitt yfir vetrarmánuðina úr 100% í 76% og nýtur ekki sjálfsagðs réttar til samfellds vinnutíma. Fólk sem sinnir störfum tengdum flugi í Keflavík vinnur alla jafna á 12 tíma vöktum. Starfsfólk í farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair mætir hins vegar til vinnu að vetri milli 5 og 9 að morgni, er síðan sent heim og gert að mæta aftur til vinnu milli 13 og 17. Þetta er óviðunandi vinnufyrirkomulag og mikilvægt að ná fram leiðréttingu á því,“ segir í frétt VR.

Bent er á það að sérkjarasamningur við Icelandair sé eitt af þeim atriðum sem standa út af í kjaraviðræðum VR og SA. Önnur atriði lúta meðal annars að launalið, forsenduákvæðum og ýmsum kjara- og réttindamálum.

„Það er von samninganefndar VR að samningar takist um þessi atriði og að ekki þurfi að koma til verkfalla. Hins vegar hefur gangur viðræðna leitt til þess að samninganefnd telur nauðsynlegt að kanna vilja félagsfólks sem starfa við farþega- og hleðsluþjónustu Icelandair á Keflavíkurflugvelli til vinnustöðvunar.“

Gert er ráð fyrir að atkvæðagreiðsla um vinnustöðvun verði auglýst á morgun, fimmtudag, og að atkvæðagreiðsla hefjist nk. mánudag kl. 9.00 og standi í þrjá daga. Verði vinnustöðvun samþykkt er gert ráð fyrir að verkföll hefjist föstudaginn 22. mars nk.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi

Svíar sjá merki um hernaðaruppbyggingu Rússa nærri Finnlandi og Noregi
Fréttir
Fyrir 21 klukkutímum

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar

Lík fannst í sjónum á milli Engeyjar og Viðeyjar
Fréttir
Í gær

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar

Geymdi dauðan frænda sinn bílskúrnum í fimm ár – Keypti eðlur fyrir bæturnar
Fréttir
Í gær

VÆB áfram í Eurovision!

VÆB áfram í Eurovision!