fbpx
Þriðjudagur 24.júní 2025
Fréttir

Jón Ingi: „Ég vil læra af Jóa heimska, ég vil ekki vera hann“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 14. febrúar 2024 13:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Ég vil læra af Jóa heimska, ég vil ekki vera hann,“ segir Jón Ingi Hákonarson, oddviti Viðreisnar í bæjarstjórn Hafnarfjarðar, í aðsendri grein á vef Vísis.

Þar skrifar Jón Ingi um þær áskoranir sem íslenska hagkerfið glímir við þrátt fyrir mikinn vöxt á undanförnum árum.

„Vöxtinn má að mestu rekja til ákaflega hraðrar uppbyggingar ferðaþjónustunnar sem er útflutningsgrein þó svo að við séum að flytja inn ferðamenn. Þenslan hefur leitt til þess að uppbygging íbúðarhúsnæðis hefur hlutfallslega dregist saman í of langan tíma og hefur þrýst á íbúðamarkaðinn með tilheyrandi skorti og verðhækkunum og verðbólgu,“ segir Jón Ingi.

Hann bendir á að þessi vandi, ásamt innfluttri verðbólgu sem varð vegna aðflutnings og framleiðsluvanda í Covid, ásamt vanhugsaðri almennri peningaprentun íslenskra stjórnvalda í stað sértækari og markvissari efnahagsaðgerðum í Covid, geri það að verkum að við glímum nú við flókinn efnahagslegan vanda.

„Efnahagsaðgerðir stjórnvalda og Seðlabanka hafa miðað að því að hægja á innlendri neyslu og fjárfestingu. Áskorunin er aftur á móti að skapa jafnvægi vegna fyrrgreinds útflutnings. Þessi viðbrögð minna mig á söguna af Jóa heimska sem týndi hundraðkalli kvöld eitt við bilaðan ljósastaur. Þar sem ekkert gekk að finna hundraðkallinn ákvað að Jói að leita að honum við næsta ljósastaur því þar voru aðstæður miklu betri til leitar,“ segir Jón Ingi sem bendir á að áskorun næstu ára sé að byggja upp mikinn fjölda íbúða án þess að setja allt á hliðina. Bleiki fíllinn sé hins vegar vaxtastigið og á meðan vextir og verðlag verði hér í hæstu hæðum verði lítið byggt sem auka mun á vandann. „Holan verður bara dýpri,“ segir hann.

Jón Ingi segir að velta þurfi fyrir sér hvort sjálfstæð peningastefna hafi nú endanlega gengið sér til þurrðar og upptaka nýs gjaldmiðils sé ekki lengur bara áhugaverð pæling, heldur nauðsynleg forsenda þess að ná hér aftur jafnvægi.

„Í hagfræðinni er til fyrirbæri sem kallast á ensku „the impossible trinity“ sem þýtt hefur verið þrílemman sem segir að ekki sé hægt að brúka á sama tíma sjálfstæða peningastefnu, hafa frjálst flæði fjármagns og stöðugt gengi. Kenningin segir að einungis sé hægt að velja sér tvo af þessum þremur þáttum,“ segir Jón Ingi og bætir við að Íslendingar hafi yfirleitt valið að hindra frjálst flæði fjármagns með fjármagnshöftum með tilheyrandi ógagnsæi, samkeppnisbresti og sóun.

„Einnig höfum við reynt að festa gengið með misjöfnum árangri. Það eina sem eftir er að reyna er að kasta krónunni og taka upp stöðuga alþjóðlega mynt, gefa í raun sjálfstæða peningastefnu upp á bátinn,“ segir hann.

Jón Ingi bendir á að hagvöxtur okkar og hagsæld byggist á því að búa við opið og frjálst hagkerfi.

„Við höfum þurft að flytja inn vinnandi hendur í vaxandi mæli síðan eftir Hrun. Hagvöxtur okkar er mannaflsfrekur og krefst mikilla fjárfestinga í innviðum. Eitt af því sem gerist þegar lítið hagkerfi með sjálfstæða mynt ákveður að taka upp stærri mynt er að vaxtamunurinn við útlönd minnkar. Hér á landi er enn stærsti kostnaðarliður einstaklinga, fyrirtækja sem gera upp í krónum og hins opinbera þegar kemur að fjárfestingu, fjármagnskostnaður. En fjármagnskostnaður er sá liður sem hefur mest áhrif á byggingarkostnað og í raun alla nauðsynlega innviðauppbyggingu.“

Jón Ingi segir að einfaldasta leiðin út úr þessum erfiða efnahagsvanda sé að taka upp stóra alþjóðlega mynt.

„Þannig getum við best nýtt okkur þá miklu krafta sem frjáls alþjóðaviðskipti geta fært okkur, aukin hagsæld, meiri samkeppni, aukinn stöðugleika og bætt lífskjör handa öllum. Hin leiðin er að taka upp haftabúskap eins reglulega hefur ráðið hér ríkjum með allri sinni spillingu, sóun og ósanngirni sem slíku fyrirkomulagi fylgir,“ segir hann og endar grein sína á þessum orðum:

„Hvað sem öllu líður þá erum við komin að þeim krossgötum þar sem við neyðumst til að velja á milli nýs gjaldmiðils eða hafta. Ég vel nýjan gjaldmiðil, en þú? Ég vil læra af Jóa heimska, ég vil ekki vera hann.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka

Smásmugulegur leigusali fékk ekki bætur vegna ófullnægjandi þrifa leigutaka
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk

Þjálfari fór í hart við Fimleikafélagið Björk
Fréttir
Í gær

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“

Ferðamaður lýsir furðulegri reynslu af Íslendingum eftir stutta heimsókn – „Þetta var sérstaklega óhugnanlegt“
Fréttir
Í gær

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“

„Enginn veit hvaða hörmungar og þjáningar þetta kann að hafa í för með sér“
Fréttir
Í gær

Ingibjörg Sólrún: „Hugarheimur vænisjúkra hefnigjarnra valdakarla er óskiljanlegur“

Ingibjörg Sólrún: „Hugarheimur vænisjúkra hefnigjarnra valdakarla er óskiljanlegur“
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Segir snjóflóðin árið 1995 og mál sem snúa að börnum erfiðust á ferlinum – „Hvatt til þess að að fólk leiti sér aðstoðar fagfólks“

Segir snjóflóðin árið 1995 og mál sem snúa að börnum erfiðust á ferlinum – „Hvatt til þess að að fólk leiti sér aðstoðar fagfólks“
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar

Íslenskar vegabréfsáritanir sagðar hafa verið misnotaðar
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Samningur Aþenu við borgina í höfn en tilfinningar Brynjars Karls blendnar

Samningur Aþenu við borgina í höfn en tilfinningar Brynjars Karls blendnar