fbpx
Mánudagur 15.desember 2025
Eyjan

Kristrún Frostadóttir skrifar: Þrjú grundvallaratriði um stuðning við Grindvíkinga

Eyjan
Mánudaginn 22. janúar 2024 12:37

Kristrún Frostadóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Náttúruhamfarirnar í Grindavík kalla á fumlaus viðbrögð og forystu í stjórnmálum. Best færi á því að ná breiðri sátt á Alþingi um stuðning við Grindvíkinga. Pólitíkin á að marka grundvallarafstöðu um markmið og skilyrði sem slíkur stuðningur verður að uppfylla.

Sex dögum eftir að eldgosið í Heimaey hófst árið 1973 samþykkti Alþingi þingsályktun um að skipuð yrði þverpólitísk þingmannanefnd til að gera tillögur um neyðarráðstafanir og fjármögnun þeirra. Tíu dögum síðar lagði nefndin fram lagafrumvarp um stofnun Viðlagasjóðs. Þar náði Alþingi saman um fjögur skýr markmið sem unnið skyldi eftir í stuðningi við Vestmannaeyinga og fjármögnun aðgerða.

Ég tel æskilegt að líta til þessa fordæmis og viðhafa sams konar vinnulag nú. Þannig mætti veita Grindvíkingum ró og fullvissu um samstöðu þjóðar. Um leið gæfist svigrúm til að útfæra stuðninginn sem best til að lágmarka neikvæð þjóðhagsleg áhrif. Með þessari nálgun má einnig forðast óþarfa flokkadrætti um viðbrögð við náttúruhamförunum í Grindavík. Það er enginn bragur á pólitískum yfirboðum í svo viðkvæmu máli.

Þrjú grundvallaratriði ættu að gilda um stuðning við Grindvíkinga eftir náttúruhamfarirnar í bænum:

(1) Kostnaður falli ekki á Grindvíkinga heldur verði borinn af þjóðinni allri sameiginlega.

(2) Neikvæð þjóðhagsleg áhrif verði lágmörkuð — svo sem áhrif á verðbólgu og húsnæðismarkað.

(3) Reynt verði að ná breiðri sátt um útfærslu aðgerða og fjármögnun þeirra.

Spurningin er ekki hvort við sem þjóð ráðum við að bera þennan kostnað, til dæmis með uppkaupum á fasteignum Grindvíkinga. Spurningin er hvernig við drögum úr neikvæðum hliðaráhrifum af þeim aðgerðum sem ráðist verður í vegna skaða sem nú þegar hefur skeð og hvernig við dreifum kostnaðinum. Ef kostnaðinum er ekki mætt með sérstakri fjármögnun þá fellur hann til í formi þenslu og verðbólgu sem magnar upp skaðann. Og ef ekki er gripið til mótvægisaðgerða á húsnæðismarkaði þá hefur það alvarlegar afleiðingar. Brýnt er að stjórnmálamenn horfist í augu við þetta og skorist ekki undan eigin ábyrgð.

Ég tel að Alþingi ætti að sammælast sem allra fyrst um einföld grundvallaratriði á borð við þau sem sett eru fram hér að ofan. Því næst ætti að skipa þverpólitíska þingmannanefnd á þeim grunni til undirbúnings laga um stuðning við Grindvíkinga.

Ég hef komið þessari skoðun skýrt á framfæri við forystufólk ríkisstjórnarinnar og formenn annarra stjórnmálaflokka á Alþingi. Flokkar minnihlutans eru sammála um þessa afstöðu og formenn meirihlutaflokkanna tóku vel í nálgun okkar á fundi formanna í Ráðherrabústaðnum í dag.

Kristrún Frostadóttir,

formaður Samfylkingarinnar – Jafnaðarflokks Íslands

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Nína Richter skrifar: Geðveikir galdrar á Tiktok

Nína Richter skrifar: Geðveikir galdrar á Tiktok
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta

Karl Ágúst Úlfsson: Aldurinn farinn að segja til sín – eins gott að þú ert að hætta
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið

Orðið á götunni: Miðflokkurinn sótti handbók í lýðskrumi til Trump – beinir málflutningi sínum að fólkinu við eldhúsborðið
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB

Sigvaldi Einarsson skrifar: Krónan er fallin í stríðinu – Við eigum engan annan leik en ESB
Eyjan
Fyrir 1 viku

Karl Ágúst Úlfsson: Þýðingin sögð frumtextanum fremri – ekki lítið hrós fyrir tvítugan ungling

Karl Ágúst Úlfsson: Þýðingin sögð frumtextanum fremri – ekki lítið hrós fyrir tvítugan ungling
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Sigmundur Ernir skrifar: Þrálát sóun á almannafé

Sigmundur Ernir skrifar: Þrálát sóun á almannafé
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande

Nína Richter skrifar: Bringubeinin á Ariönu Grande
Eyjan
Fyrir 1 viku

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi

Stjórnarandstaðan gagnrýndi fjarveru Guðmundar Inga – Var svo upplýst um að ráðherra liggur á sjúkrahúsi
EyjanFastir pennar
Fyrir 1 viku
Reiði skólameistarinn