fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Sökuð um „rándýrshegðun“ eftir að hafa tekið upp klámmyndir með unglingum

Pressan
Föstudaginn 1. desember 2023 04:23

Kay Manuel. Mynd:Instagram

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ástralska klámstjarnan Kay Manuel, 21 árs, hefur verið sökuð um „rándýrshegðun“ eftir að hún fór gagngert til Gold Coast til að taka upp klámmyndir með unglingspiltum. Unglingar flykkjast til Gold Coast við skólalok til að fagna þeim.

Yahoo segir að Manuel hafi sagt að hún hafi þénað 20.000 dollara á einum sólarhring eftir komuna til Gold Coast.

Hún auglýsti á netinu að hún myndi verða á staðnum í þær þrjár vikur sem unglingarnir eru þar að fagna skólalokum. Hún hvatti unga menn, sem gætu sannað fyrir henni að þeir séu eldri en 18 ára, að hafa samband.

Hún segist hafa stundað kynlíf með 20 unglingum á meðan á dvöl hennar stóð og hafi hún tekið það upp og birt á netinu.

Manuel hefur starfað í klámiðnaðinum síðan hún var 18 ára og þekkir því nokkuð vel til. Hún sagði að ljúka þurfi nokkrum ákveðnum skrefum áður en hún tekur upp klámefni sem hún selur síðan aðgang að á netinu. Karlarnir þurfa að sanna með opinberum skjölum að þeir séu eldri en 18 ára og einnig þurfa þeir að sýna fram á að þeir séu ekki undir áhrifum áfengis.

Erin Molan, útvarpskona, fjallaði um málið í þætti sínum og sagði hegðun Manuel vera eins og hegðun „rándýrs“ og að margir muni sjá eftir ákvörðun sinni um að taka þátt í þessu og láta mynda sig.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims

Tvöfalt líf lyfjafræðingsins: Afhjúpa manninn á bak við eina alræmdustu vefsíðu heims
Pressan
Í gær

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn

Hann var myrtur árið 2021: Á mánudag ávarpaði hann morðingja sinn
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans

Myndband varpar ljósi á hrikalegt slys áhorfandans
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg

Sala á „gullvegabréfum“ dæmd ólögleg
Pressan
Fyrir 2 dögum

Sannleikanum verður hver sárreiðastur – MAGA-liðar fokillir út í gervigreindina sem neitar að taka undir með þeim

Sannleikanum verður hver sárreiðastur – MAGA-liðar fokillir út í gervigreindina sem neitar að taka undir með þeim
Pressan
Fyrir 2 dögum

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin

Konan sem rændi Elizabeth Smart aftur handtekin
Pressan
Fyrir 3 dögum

Lést þegar sprengja sprakk í höndum hennar

Lést þegar sprengja sprakk í höndum hennar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa

Segja þessa tillögu Trump þá heimskulegustu til þessa