Veggjalýs eru blóðsugur sem leggjast á fólk og sjúga blóð úr því. Að degi til halda þær sig í rifum og sprungum en þegar nóttin brestur á, koma þær úr fylgsni sínu og leita að fólki og bíta það til að sjúga blóð úr því.
Það getur verið mjög erfitt að losna við veggjalýs því þær geta lifað í allt að eitt ár án þess að fá nokkuð að éta.
John og Susan Cooper, Bretar á á sjötugsaldri, fóru sumarið 2018 til Egyptalands í sumarfrí. Þau ætluðu að eiga notalegt frí þar og njóta sólar og hita. Þau keyptu sér gistingu á Steigenberger Aqua Magic hótelinu við Rauða hafið. Með þeim í för voru dóttir þeirra og þrjú börn hennar.
En fríið breyttist í hreina martröð vegna veggjalúsa. Veggjalýs fundust í herberginu við hliðina á herbergi hjónanna á hótelinu. Því var lokað og innsiglað á meðan meindýraeyðar eitruðu herbergið með skordýraeitri sem heitir Lambda. Það gerir út af við veggjalýs.
Á meðan veggjalýsnar voru drepnar í herberginu, lágu hjónin og eitt barnabarn þeirra í hinu herberginu og sváfu. Barnabarnið veiktist um nóttina og fór yfir í herbergið til móður sinnar. Ákveðið var að fjölskyldan myndi hittast við morgunverðarborðið næsta dag. En hjónin skiluðu sér ekki þangað.
Dóttir þeirra, Kelly Ormerod, fór því upp í herbergið þeirra og fann þau liggjandi í rúminu. Faðir hennar var úrskurðaður látinn á vettvangi en móðir hennar lést síðar á sjúkrahúsi.
Nú, fimm árum síðar, liggur dánarorsökin loksins fyrir. Hjónin létust af völdum eitrunarinnar í herberginu við hliðina. Eitrið lak inn við hurðarkarm á milli herbergjanna og eitraði fyrir þeim.
Kelly Ormerod neyddist til að fara aftur heim til Bretlands án foreldra sinna. Í fimm ár beið hún eftir svari um hvað varð þeim að bana. Svarið færir henni þau ekki aftur og sorgin er enn mikil en Kelly sagði í samtali við BBC að það sé ákveðin huggun að nú sé komið svar við hvað varð þeim að bana.