fbpx
Föstudagur 09.maí 2025
Pressan

Vinsælasta lykilorð heims er alveg ótrúlega lélegt

Pressan
Mánudaginn 20. nóvember 2023 06:30

Mynd: Getty

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ert þú latur/löt þegar kemur að því að velja lykilorð? Það má að minnsta kosti leiðum líkum að því að margir séu ansi latir og hugmyndasnauðir þegar kemur að því að velja nýtt lykilorð.

Niðurstöður nýrrar rannsóknar frá tölvuöryggisfyrirtækinu Nordpass sýna að minnsta kosti en fólk notar enn mjög léleg og óörugg lykilorð. Það kemur nú eiginlega jafn mikið á óvart og sú staðreynd að sólin sest á degi hverjum að vinsælasta lykilorðið í heiminum er „123456“!

Önnur vinsæl lykilorð eru „12345678“, „password“ og „admin“.

Nordpass tók saman lista yfir 20 vinsælustu lykilorðin en rannsókn fyrirtækisins náði til 35 landa. Hún byggist á greiningu á stórum gagnalekum á þessu ári þar sem lykilorð ganga kaupum og sölum á djúpnetinu.

Almenn tilhneiging er til að lykilorð að efnisveitum séu í veikari kantinum. Líklegast vegna þess að það er ekki svo mikið af viðkvæmum persónuupplýsingum sem er hægt að stela þar annað en að þrjótarnir geta séð að þú hefur mjög gaman af að horfa á Barbie eða heimildarmyndir um matargerð á tímum steinaldarmanna.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Drap 74 ára nágranna sinn vegna deilna um lokað hlið

Drap 74 ára nágranna sinn vegna deilna um lokað hlið
Pressan
Fyrir 2 dögum

Myrti eiginkonuna og henti fótum hennar í ruslið – Eyddi formúu í 2 áratugi í hennar nafni áður en komst upp um hann

Myrti eiginkonuna og henti fótum hennar í ruslið – Eyddi formúu í 2 áratugi í hennar nafni áður en komst upp um hann
Pressan
Fyrir 3 dögum

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði

Trump er enn að hella sér yfir blaðamenn – jafnvel þá sem eru með honum í liði
Pressan
Fyrir 3 dögum

Musk bölsótast út í fjölmiðla sem hann segir vilja sig feigan

Musk bölsótast út í fjölmiðla sem hann segir vilja sig feigan